Eldur Smári Kristinsson skrifar:
Í dag, 6. september, er Alþjóðlegur dagur homma, sem LGB International setti á laggirnar. Við komum út einu sinni til að segja sannleikann um kynhneigð okkar. Nú verða sum okkar að koma út aftur til að segja sannleikann um, ekki það sem við trúum – heldur vitum!
Fyrir áratugum komum við hommar út til að lifa í sátt við okkur sjálfa og samfélagið. Við sögðum: Ég er maður sem þráir aðra menn. Ég elska karlmenn. Ég vil lifa með maka af sama kyni og njóta sama lagalega réttar og bera sömu skyldur og gagnkynhneigt fólk.
Kynhneigðin byggist á kyni, ekki tilfinningu eða sjálfsskilgreiningu. Hún er beinlínis líffræðileg og er til víðs vegar í dýraríkinu.
Áratuga barátta skilaði lögum, hjúskaparrétti og viðurkenningu.
Nú er okkur sagt að þessi sannleikur sé úreltur. Kynjahugmyndafræðin krefst þess að við samþykkjum að karlmaður geti orðið kona og öfugt og að hvaða kona sem er geti skilgreint sig sem homma.
Þetta er ekki framþróun. Þetta er afneitun á líffræði og kynhneigðinni sjálfri.
Þetta er ný birtingarmynd hómófóbíu og það sem gerir hana erfiðari viðfangs er að hún er bæði kerfislæg og kemur jafnvel innan úr hreyfingu sem okkur er sagt að við eigum að tilheyra.
En hvers vegna sérstakur dagur fyrir homma?
Jú, ung samkynhneigð ungmenni hafa haft samband við LGB-samtökin á Íslandi vegna þess að þau eiga erfitt með að koma út. Það er ekki vegna þess að þau glími við laskaða sjálfsmynd vegna kynhneigðar sinnar, heldur vegna þess að þeim finnst þau ekki eiga heima í hreyfingu svokallaðs „hinsegin“ fólks og öllu því mjög svo sundurleita föruneyti sem þar heyrir undir.
Þetta sjáum við einnig hjá systursamtökum okkar víða um heim. Þess vegna höfum við sett á laggirnar LGB Youth Ambassadors, þar sem ungt fólk á aldrinum 16 til 25 ára ræðir þessi mál og deilir reynslu sinni með öðrum.
Tvíkynhneigðir eiga sína sýnileikaviku (Bisexual Awareness Week), sem stendur frá 16. til 23. september, og Dag tvíkynhneigðra (Celebrate Bisexuality Day) 23. september. Auk þess er mars heilsumánuður tvíkynhneigðra (Bisexual Health Awareness Month).
Almanak transfólks minnir helst á trúarlegt dagatal frá miðöldum. Þar er að finna fjölmarga daga, vikur og mánuði: Alþjóðlegan sýnileikadag transfólks (International Transgender Day of Visibility) 31. mars, vitundarvakningarviku transfólks (Trans Awareness Week), vitundarvakningarmánuð og minningardag í nóvember, sögumánuð í ágúst og sýnileikadag transforeldra. Listinn er ótæmandi.
Hommar höfðu ekkert slíkt – þar til nú.
Margir hommar, þar á meðal þeir sem hafa farið í gegnum transferli og séð eftir því, eru nú að koma út aftur.
Þeir segja: Ég er ennþá hommi. Ég er ennþá karlmaður. Kynin eru tvö og það er ekki hægt að skipta um kyn. Þessi rödd er ekki hatursfull – hún er áminning til okkar sem erum samkynhneigð.
Á Íslandi höfum við séð þessa hugmyndafræði ná tökum á stofnunum, skólum og jafnvel gömlu hommasamtökunum. Ungir strákar sem eru einfaldlega hommar eða óöruggir fá nú tilboð um hormónameðferð og skurðaðgerðir í stað þess að fá að þroskast. Það er ekki umburðarlyndi. Það er nýtt form bælingarmeðferðar.
Í yfir 60 ríkjum er samkynhneigð refsiverð og sums staðar liggur jafnvel dauðarefsing við henni.
Alþjóðlegur dagur homma er tækifæri til að minna á að við eigum okkar eigin sögu, okkar eigin áskoranir og okkar eigin réttindi. Við þurfum ekki að láta aðra skilgreina okkur upp á nýtt.
Við komum út einu sinni. Við komum út aftur. Sannleikurinn um kyn og kynhneigð stendur.
Höfundur er alþjóðafulltrúi LGB-samtakanna og situr í stjórn LGB International fyrir Íslands hönd.
Sjá:
https://www.facebook.com/share/r/1FGYqadmdg/?mibextid=wwXIfr