Bruggsalar gervigreindarinnar

Íris Erlingsdóttir skrifar:

Óttinn og hræðsluáróðurinn í kringum gervigreind er það sem austurríski heimspekingurinn Karl Popper kallaði scientism– notkun vísindalegs orðfæris til að setja fram óvísindalegar fullyrðingar.

Auglýsing

Stjórnendur Anthropic, bandarísks gervigreindarfyrirtækis sem stofnað var árið 2021, og Demókratarnir eru með frelsarakomplex. Þeir telja sig vera „rétta“ fólkið, heimspekingakonunga Platós, sem geti leitt heiminn til farsældar með hjálp gervigreindarinnar, á meðan alla aðra skortir siðferði til þess.

Þannig réttlæta þeir áframhaldandi uppbyggingu þess sem þeir sjálfir segja að gæti útrýmt plánetunni á næsta kortéri, í stað þess að segja einfaldlega að gervigreindin sé svo hættuleg að best sé að stöðva allt og skila peningunum aftur til fjárfestanna:

„Við getum ekki tekið þátt í því að byggja eitthvað sem gæti eyðilagt plánetuna! Við verðum að hætta þessu!“

En í staðinn segja þeir:

„Nei, við ætlum að gera þetta – en við viljum fá hina ‘góðu’ ríkisstjórn til að hjálpa okkur, vegna þess að við erum svo GÓÐ. Við höfum æðri siðferðisvitund og erum svo óeigingjörn, ólíkt vonda fólkinu. Þess vegna verðum við auðvitað að sigra það með hjálp góðrar ríkisstjórnar, Demókrata, sem mun setja lög og reglur, halda keppinautum okkar frá borðinu með boðum og bönnum og banna almenningi að nota gervigreindina með ákveðnum hætti.

Blautur draumur fyrir Demókrata, sem vilja banna málfrelsi – enda hata þeir það. Og við getum réttlætt þetta allt á þeim forsendum að VIÐ erum svo góð!“

Í raun vilja þessir óttasmiðir, þetta hræðsluáróðurslið, útiloka keppinauta. Þetta er kallað Bootleggers and Baptists-fyrirbærið.

Annars vegar eru baptistarnir – siðferðisboðberarnir:

„Við erum hér til að vernda ykkur og allt samfélagið gegn fyllibyttunum! Þess vegna þurfum við bannlög.“

Hins vegar eru bruggsalarnir:

„Já, endilega setjið þessi lög og gerið okkur kleift að selja áfengi á hærra verði á svörtum markaði með því að banna það! Við munum græða á þessu og styðja stjórnmálamennina ykkar sem predika um siðferði!“

Höfundur er fjölmiðlafræðingur.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing