Árni Stefán Árnason skrifar:
Opinber dýravernd á Íslandi hefur átt mjög erfitt með að fóta sig. Hún hefur færst á milli stofnana og aldrei náð þeirri faglegu fótfestu sem nauðsynleg er. Nú er hún í höndum hinnar umdeildu Matvælastofnunar.
Ríkisendurskoðandi, sem er mikill dýravinur, áttaði sig á því hversu umdeild Matvælastofnun er og hóf fyrir nokkrum árum rannsókn á starfsháttum stofnunarinnar. Niðurstöðurnar birtust í skýrslu til Alþingis árið 2023.
Skýrslan dró upp dökka mynd. Samkvæmt henni mældist traust almennings til stofnunarinnar undir 5 prósentum og innri samskipti Matvælastofnunar mældust enn verr, sem er umhugsunarvert. Þetta er nokkuð í samræmi við niðurstöðu mína í greininni „Hömlulaus valdníðsla og ofbeldi MAST“, sem birtist hér á Nútímanum 5. mars síðastliðinn.
Ekki veit ég hvort þetta hafi ráðið því að atvinnuvegaráðherra ákvað að leggja Matvælastofnun niður, færa framkvæmd laga um velferð dýra undir Stofnun atvinnuveganna og leggja niður stöður forstjóra Matvælastofnunar og yfirdýralæknis.
Ákvörðun ráðherra ber óneitanlega keim af slíku.
Starfsmenn þurfa að uppfylla hæfisskilyrði
Í ákvæði til bráðabirgða í lögum um Stofnun atvinnuveganna segir:
„Staða forstjóra Matvælastofnunar, fiskistofustjóra, forstöðumanns Verðlagsstofu skiptaverðs og embætti yfirdýralæknis, sem og öll önnur störf hjá Matvælastofnun, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs eru lögð niður frá og með 1. janúar 2027. Starfsfólk Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs, annað en forstjóri Matvælastofnunar, fiskistofustjóri og forstöðumaður Verðlagsstofu skiptaverðs, sem er í starfi við gildistöku laga þessara, sinnir þeim verkefnum sem færast til nýrrar stofnunar samkvæmt lögum og uppfyllir hæfisskilyrði og önnur lögbundin skilyrði til starfsins, skal eiga forgangsrétt til starfa hjá Stofnun atvinnuveganna þegar hún tekur til starfa 1. janúar 2027.“
Brýnt er að tryggja að þeir starfsmenn sem eiga kost á þeim forgangi sem lögin kveða á um uppfylli framangreind hæfisskilyrði og önnur lögbundin skilyrði starfsins.
Ekki er ólíklegt að ráðherra telji þörf á að meta það vandlega í ljósi þeirrar óánægju sem ríkt hefur meðal landsmanna.
Jafnframt er brýnt að nú verði, í eitt skipti fyrir öll, tryggt með fullnægjandi hætti að framkvæmd laga um velferð dýra komist í þann gæðaflokk sem dýraeigendur og dýrin sjálf eiga skilið. Danir hafa gengið skrefinu lengra og ákveðið að sérstakur ráðherra fari með málefni dýraverndar þar í landi.
Þrettán sækjast eftir embætti forstjóra
Þrettán einstaklingar sækjast eftir embætti forstjóra hinnar nýju stofnunar. Það vekur nokkra undrun að þar á meðal sé núverandi forstjóri Matvælastofnunar, þrátt fyrir þá lágu einkunn sem stofnunin fékk í rannsókn Ríkisendurskoðunar.
Vonandi tekst atvinnuvegaráðherra að finna forstjóra sem hefur ríka tilfinningu fyrir mikilvægi opinberrar dýraverndar á Íslandi og gjörþekkir lög um velferð dýra.
Það er mitt mat að opinber dýravernd hafi aldrei verið á verri stað en nú. Framkvæmd og túlkun laga um velferð dýra er í algjörum molum. Ég hef látið mig þessi málefni varða um langa hríð og núverandi staða veldur verulegum áhyggjum.
Landsmenn virðast margir sömu skoðunar, ef marka má umræðu um Matvælastofnun á samfélagsmiðlum. Fjölmargir þingmenn sem hafa tjáð sig um stofnunina virðast einnig sammála þeirri gagnrýni.
Stofnun atvinnuveganna tekur til starfa 1. janúar 2027. Það er von mín að ráðherra takist ætlunarverk sitt og að stofnun hinnar nýju stofnunar leiði til stórbættra gæða í opinberri dýravernd á Íslandi.
Höfundur er dýraverndarlögfræðingur.