Er hægt að treysta konum fyrir ábyrgð og völdum?

Íris Erlingsdóttir skrifar:

Konur hafa alltaf verið auðginntar fyrir félagslegri smitun, en aldrei meira en nú. Samfélagið hefur ekki aðeins leyft taugaveiklun að fara úr böndunum, heldur lofum við og upphefjum hysteríska tilfinningasemi.

Auglýsing

Fyrstu femínistarnir börðust gegn þeirri hugmynd að ekki væri hægt að treysta konum vegna þess að þær væru „hysterískar“, of tilfinningasamar og óskynsamar til að bera ábyrgð; þær væru fórnarlömb eigin tilfinninga. Nú segir herskari kvenna, stuðningskvendi Lindsay Clancy, að konur eigi ekki að bera ábyrgð vegna þess að þær séu undir stjórn líffræðilegra þátta sem þær ráði ekki við. Ef það er rétt, verðum við þá ekki að neita konum um sjálfsákvörðunarréttinn sem fyrri kynslóðir börðust fyrir?

Á samfélagsmiðlum hefur veirukennd þróun breiðst út undir yfirskriftinni „Same Lindsay“. Konur taka upp myndbönd af sjálfum sér með réttarhöldin í bakgrunni, gráta, öskra og meiða börnin sín, sem gráta af ótta við kexbilaðar mæður sínar. „Við konur þjáumst í hljóði, en nú sjáið þið þjáningu okkar. Andlega erum við svo illa staddar að við getum ekki einu sinni annast börnin okkar. Þetta er það sem móðurhlutverkið gerir okkur.“

Það á að normalísera það sem áður var tabú, að meiða börn, og líta á slíka hegðun sem óhjákvæmilega afleiðingu streitunnar og erfiðleikanna sem fylgja móðurhlutverkinu. Ef konur þola ekki álagið og meiða eða myrða börnin sín, þá munum við ekki aðeins styðja þær heldur gera þær að hetjum.

Fórnarlambið gert að hetju

Þessar konur þrá eigin hetjusögur þar sem þær eru í aðalhlutverki og geta lagt áherslu á hversu bágt þær eiga. Clancy er fullkomið tákn fyrir þær. „Hún fékk ekki næga hjálp … Heilbrigðiskerfið brást henni …“

Staðreyndin er sú að heilbrigðiskerfið hefur aldrei verið betra en nú. Aldrei hefur verið meiri vitund um geðheilbrigði. En hvenær munu konur segja: „Takk, við höfum fengið nægan stuðning og hvað sem gerist héðan í frá er á okkar eigin ábyrgð“?

Hvernig myndi „betra geðheilbrigðiskerfi“ líta út? Fleiri lyfseðlar? Fleiri lyf? Við ávísum fleiri lyfjum en nokkru sinni fyrr. En nei, það er líka rangt! Sama hvað er gert, það er aldrei nóg jafnrétti fyrir okkur. Aumingja við …

Nútíma kvennabarátta snýst um að vernda ímynd kvenna sem fórnarlamba. Við höldum því fram að konur séu í eðli sínu saklausar eins og börn. Við eigum ekki að þurfa að taka ábyrgð, því við erum alltaf fórnarlömb, en á sama tíma krefjumst við þess að vera álitnar sterkara kynið, betri og klárari.

Lindsay Clancy er ekki lengur manneskja sökuð um morð. Hún er látin endurspegla þunglyndi tengt barnsburði og geðheilbrigðisvandamál allra kvenna, þótt staðreyndin sé sú að enginn læknanna sem önnuðust hana hafi greint hana með „þunglyndi eftir fæðingu“, hvað þá „geðrof eftir fæðingu“. Greiningarnar voru „kvíði, þunglyndi og svefnleysi“.

Ábyrgðinni varpað annað

Femínisminn heldur því fram að konur búi yfir siðferðilegum yfirburðum, meðfæddum hreinleika, sakleysi og styrk. Staðreyndirnar skipta ekki máli. Kennum eiginmanninum um. Auðvitað! Strax er krafist ábyrgðar af körlum en konur eru barnvæddar svo þær geti ekki borið ábyrgð. Kennum lyfjunum og læknunum um. Kennum öllu öðru um, svo lengi sem Lindsay Clancy þarf ekki að bera ábyrgð á morðunum sem hún framdi.

Sálfræðilega ferlið snýst um að verja þá hugmynd að konur séu ósjálfbjarga börn sem beri ekki ábyrgð á eigin gjörðum. Clancy er táknmynd þeirrar tilhneigingar að sjúkgera eðlilega reynslu kvenna, svo sem það að eignast börn, því móðurhlutverkið er svo erfitt!

Samfélagið þarfnast félagslegra varnagla og fordóma varðandi geðheilsu. Við öll, konur og karlar, þurfum að berjast gegn okkar verstu hvötum og félagslegir varnaglar eru ein mikilvægasta vörnin gegn þeim. Við þurfum ekki meiri „vitund“. Þvert á móti: Vegna áhrifa félagslegrar smitunar þurfum við minni áherslu á stöðuga vitundarvakningu og ef til vill nokkra skammta af heilbrigðri tortryggni í umræðunni um geðheilbrigði.

Eigum við að trúa því að móðurhlutverkið sé svo hættulegt ástand að það geti rekið konur út í stjórnlaust ofbeldi eða algjöra vanvirkni? Eiga konur að gangast undir skyldubundið geðmat áður en þær verða mæður eða fara í sérstakt mat áður en þær snúa aftur til vinnu?

Augljóslega geta mæður verið stórhættulegar … Kannski geta þær ekki starfað sem læknar eða lögreglumenn. Sérstaklega ekki ef þær taka þunglyndislyf, eins og ein af hverjum sex konum gerir.

Höfum við hugsað þetta til enda?

Höfum við hugsað þetta alla leið til enda? Hvernig tryggjum við öryggi samfélagsins gagnvart hópi fólks sem greinilega er ekki hægt að treysta fyrir valdi og ábyrgð?

Femínistar vilja öðlast völd í gegnum fórnarlambshlutverkið en krefjast þess jafnframt að konur séu álitnar sterkari og siðferðilega æðri mannverur. Við konur erum svo viðkvæmar en jafnframt svo stórkostlegar og færar um allt. Við erum í eðli okkar betri og kærleiksríkari, en þegar við erum það ekki, þá er það ekki okkur að kenna.

Með þessari hugmynd um yfirburði kvenna vilja konur öðlast og halda þeim völdum sem þær hafa fengið með því að vopnavæða fórnarlambshlutverkið. Þannig höfum við komist áfram innan fyrirtækja og stjórnmála: „Aumingja við konur. Það hefur alltaf verið komið svo illa fram við okkur. Þess vegna á alltaf að velja okkur fram yfir hæfari karlmenn með betri menntun og meiri reynslu, því þið hafið alltaf verið svo vondir við okkur.“

Höfundur er fjölmiðlafræðingur.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing