Árið 2013 varð Ísland fyrsta Evrópuríkið til að gera fríverslunarsamning við Kína. Með samningnum sýndi Ísland hvað lítið EES/EFTA-ríki getur áorkað þegar það fer sjálft með utanríkisviðskipti sín. Þrettán árum síðar hefur frumkvæðið hins vegar færst annað. Sviss hefur nú samið um uppfærslu á fríverslunarsamningi sínum við Kína á meðan Ísland á á hættu að verða áhorfandi að þróun sem það hafði sjálft forystu um.
Fríverslunarsamningur Íslands og Alþýðulýðveldisins Kína var undirritaður í Peking 15. apríl 2013 og tók gildi 1. júlí 2014. Ísland varð þar með fyrsta Evrópuríkið til að gera fríverslunarsamning við Kína.
Samningnum var ætlað að greiða fyrir viðskiptum ríkjanna, lækka tolla og aðrar viðskiptahindranir og styrkja efnahagstengsl þeirra. Fyrir Ísland fólst mikilvægi hans ekki síst í betri markaðsaðgangi fyrir íslenskar sjávarafurðir í Kína. Fyrir Kína hafði samningurinn bæði efnahagslega og pólitíska þýðingu sem fyrsti fríverslunarsamningur landsins við evrópskt ríki.
Samningurinn var jafnframt pólitískt afrek. Hann sýndi að lítið EES- og EFTA-ríki utan Evrópusambandsins gat samið á eigin forsendum við eitt helsta stórveldi heims og náð sýnilegum árangri í utanríkisviðskiptum.
Þrjár ríkisstjórnir
Saga samningsins spannar þrjár ríkisstjórnir. Undirbúningur hófst árið 2006 og formlegar samningaviðræður í apríl 2007, í tíð ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Fjórar samningalotur fóru fram á árunum 2007 og 2008.
Viðræðurnar lágu síðan niðri eftir að Ísland sótti um aðild að Evrópusambandinu árið 2009. Með aðild að ESB hefði forræði yfir utanríkisviðskiptum Íslands færst til sambandsins og tvíhliða fríverslunarsamningur Íslands og Kína því ekki getað staðið óbreyttur. Kína hafði litla ástæðu til að verja tíma og mannafla í gerð slíks samnings við ríki sem stefndi inn í Evrópusambandið.
Í apríl 2012 var hins vegar ákveðið að taka viðræðurnar við Kína upp að nýju. Aðildarviðræður Íslands og ESB stóðu þá enn formlega yfir. Kína, sem hafði haft litla ástæðu til að halda viðræðum áfram eftir umsókn Íslands að ESB, var nú tilbúið að koma aftur að samningaborðinu. Ekki verður fullyrt hvað lá að baki þeirri ákvörðun, en nærtækt er að ætla að þar hafi einnig verið lagt pólitískt mat á líkurnar á því að Ísland gengi í Evrópusambandið.
Fimmta samningalotan fór fram 18.–20. desember sama ár. Fyrsti dagur þeirrar lotu, 18. desember, var jafnframt dagur síðustu ríkjaráðstefnu Íslands og Evrópusambandsins.
Sama dag og síðasti formlegi samningafundur Íslands og ESB fór fram hófst ný lota í viðræðum Íslands og Kína. Aðildarviðræðurnar við ESB komust ekki lengra, þótt síðar væri talað um að þær hefðu verið settar í hlé. Viðræðurnar við Kína héldu hins vegar áfram. Sjötta og síðasta lotan fór fram 22.–24. janúar 2013 og fríverslunarsamningurinn var undirritaður 15. apríl, innan fjögurra mánaða frá síðustu ríkjaráðstefnunni með ESB.
Samningurinn var undirritaður í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur en tók gildi eftir stjórnarskiptin 2013. Hann var því hvorki verk einnar ríkisstjórnar né eins stjórnmálaflokks. Saga hans sýnir hversu mikilvægt er að festa og langtímasýn ríki í stefnumótun varðandi utanríkisviðskipti. Sjálfstæð utanríkisviðskiptastefna getur þannig nýst til að gæta langtímahagsmuna þjóðarinnar, óháð því hvaða ríkisstjórn eða flokkar eru við völd.
Fyrir þá sem lögðu áherslu á fullveldi og sjálfstæða viðskiptastefnu var samningurinn sönnun þess að Ísland gæti skapað sér tækifæri utan Evrópusambandsins. Aðrir litu fyrst og fremst á hann sem raunhæfa leið til að tryggja íslenskum fyrirtækjum betri markaðsaðgang. Hvort tveggja fólst í samningnum: pólitískt svigrúm sjálfstæðs ríkis og áþreifanleg viðskiptatækifæri fyrir íslenskt atvinnulíf.
Icesave og tveggja stoða kerfið
Í þjóðaratkvæðagreiðslunum 2010 og 2011 höfnuðu íslenskir kjósendur samningum sem hefðu lagt fjárhagslega ábyrgð vegna Icesave-reikninganna á íslenska ríkið. Þar með var áréttað að stórar ákvarðanir um fjárhagslega ábyrgð ríkisins yrðu ekki teknar í alþjóðlegum samningaviðræðum án lýðræðislegs umboðs þjóðarinnar.
Dómur EFTA-dómstólsins 28. janúar 2013 styrkti stöðu Íslands enn frekar. Dómstóllinn hafnaði kröfum Eftirlitsstofnunar EFTA gegn Íslandi og komst að þeirri niðurstöðu að tilskipunin um innstæðutryggingar legði ekki þá skyldu á íslenska ríkið sem haldið hafði verið fram við þær aðstæður sem sköpuðust við kerfishrun bankanna.
Aðeins tæpum þremur mánuðum síðar var fríverslunarsamningurinn við Kína undirritaður.
Lagalegur sigur Íslands í Icesave-málinu og fríverslunarsamningurinn við Kína voru ólíkir atburðir. Í Icesave-málinu reyndi á stöðu Íslands innan EES-samningsins og tveggja stoða kerfis hans. Eftirlitsstofnun EFTA höfðaði mál gegn Íslandi, en EFTA-dómstóllinn féllst ekki á málatilbúnað hennar. Ísland gat þannig varið stöðu sína innan þess stofnanakerfis sem EES-samningurinn byggir á.
Fríverslunarsamningurinn við Kína laut að öðru sviði. Þar fór Ísland sjálft með ákvörðunarvaldið og gat samið beint við Kína um markaðsaðgang og önnur viðskiptakjör. Á sama tíma og Ísland hafði varið stöðu sína innan tveggja stoða kerfis EES-samningsins gat það því nýtt fullveldi sitt utan Evrópusambandsins til að móta eigin efnahagstengsl við eitt helsta stórveldi heims.
Þetta gerðist í kjölfar eins mesta efnahagsáfalls Íslandssögunnar. Á örfáum árum hafði reynt bæði á getu ríkisins til að hafna fjárhagslegri ábyrgð sem þjóðin vildi ekki samþykkja, verja lagalega stöðu sína fyrir EFTA-dómstólnum og nýta sjálfstæða utanríkisviðskiptastefnu til að opna nýjan markað.
Sviss tók fram úr Íslandi
Sviss varð næsta EFTA-ríkið á eftir Íslandi til að gera fríverslunarsamning við Kína. Sá samningur tók einnig gildi 1. júlí 2014.
Síðan hafa leiðir ríkjanna hins vegar skilið. Sviss hóf formlegar viðræður við Kína um uppfærslu samningsins í september 2024. Að loknum fimm samningalotum lauk viðræðunum 20. ágúst síðastliðinn.
Samkvæmt núgildandi samningi fara nær allar kínverskar vörur tollfrjálst inn á svissneskan markað, en aðeins um helmingur svissnesks útflutnings nýtur tollfrelsis í Kína. Þegar uppfærði samningurinn tekur gildi verður 99,8% núverandi útflutnings Sviss hægt að flytja tollfrjálst inn á kínverska markaðinn.
Uppfærslan nær einnig langt út fyrir tollamál. Samkomulag hefur náðst um bætt skilyrði fyrir fjárfestingar og ný eða endurbætt ákvæði um upprunareglur, þjónustuviðskipti, stafræn viðskipti, samkeppnismál, ráðstafanir til að greiða fyrir viðskiptum og sjálfbæra þróun.
Sviss hefur þannig haldið áfram að þróa samning sem tók gildi árið 2014 og laga hann að breyttum viðskiptaháttum og nýjum sviðum alþjóðaviðskipta. Samningurinn frá 2014 var ekki lokaáfangi heldur grunnur að frekara samstarfi þegar hagsmunir og aðstæður kölluðu á það.
Sjálfstæð viðskiptastefna
Á sama tíma og Sviss vann að uppfærslu fríverslunarsamnings síns við Kína beindist pólitísk umræða á Íslandi að því hvort hefja ætti aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju. Aðild að ESB hefði fært forræði yfir utanríkisviðskiptum Íslands til sambandsins og þar með breytt grundvelli sjálfstæðrar viðskiptastefnu gagnvart ríkjum á borð við Kína.
Þjóðin hefur nú hafnað því að aðildarviðræður við Evrópusambandið verði hafnar að nýju. Ísland er sjálfstætt ríki utan Evrópusambandsins og ræður sjálft utanríkisviðskiptum sínum.
Það frelsi hefur aðeins gildi ef það er nýtt.
Spurningin er því einföld: Hvenær ætlar ríkisstjórnin að taka frumkvæðið að nýju og óska eftir viðræðum við Kína um endurskoðun og uppfærslu fríverslunarsamningsins?
Slíkar viðræður ættu að miða að áþreifanlegum ávinningi fyrir íslenskt atvinnulíf: betri tollkjörum fyrir mikilvægar íslenskar útflutningsvörur, uppfærðum upprunareglum og ákvæðum um stafræn viðskipti, þjónustuviðskipti og fjárfestingar. Einnig liggur fyrir hvað Sviss hefur nú samið um varðandi samkeppnismál, ráðstafanir til að greiða fyrir viðskiptum og sjálfbæra þróun.
Fríverslunarsamningurinn við Kína var gerður við aðrar aðstæður en ríkja í alþjóðaviðskiptum í dag. Stafræn viðskipti hafa aukist, þjónustuviðskipti hafa fengið meira vægi og reglur um fjárfestingar, uppruna vöru og framkvæmd viðskipta hafa þróast. Uppfærsla samningsins snýst því ekki eingöngu um að bæta tollkjör heldur einnig um að tryggja að íslensk fyrirtæki búi við samkeppnishæf skilyrði á kínverskum markaði eftir því sem viðskiptin þróast.
Fullveldið skapar ekki verðmæti af sjálfu sér. Sjálfstæð viðskiptastefna er heldur ekki skrautfjöður sem stjórnmálamenn draga fram við hátíðleg tækifæri. Hún er verkfæri til að tryggja íslensku atvinnulífi markaðsaðgang, skapa störf og opna ný tækifæri.
Árið 2013 sýndi Ísland að smáríki gæti haft frumkvæði, samið við stórveldi og náð árangri á eigin forsendum. Nú þarf ríkisstjórnin að sýna að hún skilji þá stöðu sem þjóðin hefur staðfest og sé reiðubúin að nýta hana.
Ísland var frumkvöðull árið 2013. Það má ekki sætta sig við að vera áhorfandi árið 2026.