Heimalöguð dýrtíð með vaxtajafningi

Íris Erlingsdóttir skrifar:

Ástæðan fyrir því að „allt er svo dýrt á Íslandi!” er ekki aðeins kostnaðurinn við að flytja neysluvarning okkar yfir Atlantshafið. Íslendingar, eins og flestir borgarar nútímasamfélaga, krefjast sífellt aukinna réttinda, betri kjara og strangari umhverfisverndarlaga með tilheyrandi kvöðum. Þetta er ekki ókeypis. M.ö.o., við gerum það sífellt dýrara að framleiða vörur og þjónustu, en kvörtum hástöfum þegar reikningurinn kemur.

Auglýsing

Kröfurnar geta verið fullkomlega réttmætar. Við viljum flest hafa „mannsæmandi” laun, örugga vinnustaði og hreint umhverfi. En þegar við kaupum í matinn erum við reið og undrandi yfir að allt kostar miklu meira en það gerði fyrir nokkrum árum. Einhver hlýtur að vera að okra á okkur! Eigendur matvöruverslana og framleiðendur eru gráðugir, verð á veitingastöðum er fáránlegt! En „græðgi“ er ekki hagfræðileg greining og er léleg skýring á verðhækkunum.

„Græðgi“ skýrir ekki verðhækkanir

Til dæmis hefur hreinn hagnaður tveggja stærstu íslensku verslunarsamstæðnanna verið um 3–4% af veltu. Fyrirtæki með 3,5% hreint hagnaðarhlutfall sem selur vörur fyrir 10.000 kr. heldur eftir 350 kr. Hinar 9.650 krónurnar fara í að greiða fyrir vörurnar sjálfar og allan kostnað við rekstur fyrirtækisins—greiðslur til birgja, laun og launatengd gjöld, húsnæðiskostnað, viðhald, tryggingar, rafmagn, flutninga, rýrnun, kortagjöld, vexti og skatta, svo eitthvað sé nefnt.

Ástæðan fyrir dýrtíðinni sem við sífellt kvörtum yfir er svo augljós að það er næstum vandræðalegt að þurfa að nefna hana: Við höfum gert dýrara að framleiða og fá allt sem við kaupum. Hver héldum við eiginlega að myndi borga brúsann? Peningar vaxa ekki á trjánum. Fyrirtæki hafa ekki margar lausnir til að mæta auknum kostnaði. Þau geta sætt sig við minni hagnað, dregið úr fjárfestingum eða fækkað starfsfólki. Eða þau geta hækkað verð á vörum og þjónustu. Oftast er niðurstaðan einhver blanda af þessu öllu. Það eina sem fyrirtækið getur ekki gert er að láta kostnaðinn hverfa.

Tökum sem dæmi hamborgara á veitingastað. Áður en þú borðar hann hefur einhver þurft að ala nautið og slátra því, vinna kjötið, kæla, flytja, elda og bera það fram. Fyrir utan hráefniskostnað ber veitingastaðurinn sömu kostnaðarliði og ofangreint fyrirtæki og birgjar hans glíma við hið sama.

Hækki kostnaður á nógu mörgum stöðum í þessari keðju gerist nokkuð merkilegt: Hamborgarinn verður dýrari! En við virðumst halda að ekkert samband sé þar á milli. Við styðjum aðgerðir sem gera það dýrara að ráða fólk, framleiða vörur, viðhalda húsnæði og reka fyrirtæki. Þegar sá kostnaður endurspeglast svo í verðlagi, kvörtum við yfir okri! Þetta er eins og að panta kampavín fyrir alla á veitingastaðnum og verða svo ævareiður þegar þjónninn kemur með reikninginn.

Hver borgar fyrir góðu fyrirheitin?

Allar ákvarðanir af hálfu hins opinbera hafa kostnað í för með sér. Ef við ákveðum að tiltekin umhverfisregla sé mikilvæg, gott og vel. En við veltum sjaldan fyrir okkur hvað reglan kostar og hver borgar, hvað þá hvort og hvaða mælanlega árangri reglan mun skila.

Lágmarkslaun eru siðferðilega aðlaðandi hugmynd og gott dæmi um eitt helsta sjónhverfingabragð nútíma efnahagsumræðu: Við ræðum ávinninginn á siðferðilegum forsendum en kostnaðinn eins og hann sé aðeins bókhaldsatriði. Ef ný réttindi eða hlunnindi launafólks eru lögfest, segið okkur hve miklu þau bæta við hvað það kostar að hafa fólk í vinnu. Ef nýr skattur er lagður á fyrirtæki, hættum að láta eins og hann verði kurteislega eftir inni í fyrirtækinu sem hann var lagður á. Hluti skattsins kann að koma niður á hagnaði eða lenda á hluthöfum, en stærsti hluti hans mun að líkindum skila sér til neytenda í hærra verðlagi. Það er ekkert til sem heitir „ókeypis hádegisverður.”

Íslenski vaxtajafningurinn

Íslenska efnahagskerfið er gott dæmi um þessa keðjuverkun. Ríkið hækkar skatta og gjöld sem hafa áhrif á verðlag. Hækkanirnar valda aukinni verðbólgu (Seðlabankinn sagði í ágúst að aukning verðbólgu hefði fyrst og fremst litast af hækkun opinberra gjalda, auk áhrifa stríðsátaka í Mið-Austurlöndum), sem stækkar höfuðstól hinna séríslensku verðtryggðu skulda. Svo hækkar Seðlabankinn vexti til að reyna að ná verðbólgunni niður. Íslendingar fá því högg úr mörgum áttum: í hærra verðlagi, í gegnum verðtrygginguna og loks með dýrara lánsfé.

Lítið og opið hagkerfi eins og Ísland verður auðvitað fyrir áhrifum af gengissveiflum og atburðum erlendis. En stjórnvöld geta ekki látið eins og kostnaðurinn sem þau leggja á hagkerfið standi einhvern veginn utan verðbólgunnar.

Reikningur þarf að komast í tísku. Kostnaðurinn við kröfurnar sem við gerum um göfug málefni eins og risavaxið velferðarkerfi og umhverfisvernd gufa ekki upp þegar lögin taka gildi. Það er ekkert til sem heitir „peningar ríkisins,” aðeins peningar skattgreiðenda. Né eru til ótæmandi sjóðir af peningum fyrirtækja sem hægt er að sækja í endalaust.

Fyrsta skilyrði alvöru stjórnmálaumræðu er að viðurkenna að reikningurinn kemur alltaf, með einum eða öðrum hætti. Ekkert er ókeypis.

Höfundur er fjölmiðlafræðingur

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing