Helgi Bjarnason skrifar:
Ljóst má vera öllum þenkjandi mönnum að launaður erindreki stjórnarflokks á ekkert erindi í stjórn fjölmiðils sem á að vera pólitískt óháður. Þar er eðli máls samkvæmt augljós hagsmunaárekstur. Eða, ef við viljum tala hreina íslensku: Þetta er óboðlegt.
Þrátt fyrir það situr Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri og upplýsingafulltrúi þingflokks Flokks fólksins, í stjórn RÚV. Þar að auki var hann kosningastjóri flokksins í Reykjavík í sveitarstjórnarkosningunum 2026. Flokksstarfið er ekki eitthvert aukaatriði í hans starfi. Það er atvinnan hans og lifibrauð.
Ummæli um Úkraínu og umfjöllun RÚV
Þegar Heimir hvatti Frakklandsforseta til að senda hermenn til Úkraínu og hafa kjarnorkuvopnin tilbúin til notkunar, fjölluðu fjölmargir íslenskir miðlar um málið. Á fréttavef RÚV virðist hins vegar enga umfjöllun að finna. Sætir það óneitanlega furðu. Það sem er fréttnæmt hjá öðrum miðlum virðist ekki vera fréttnæmt hjá RÚV þegar eigin stjórnarmaður á í hlut.
Hæfisreglur og vinnureglur RÚV
Fyrir liggur að fréttamenn RÚV mega samkvæmt vinnureglum stofnunarinnar ekki taka þátt í starfi stjórnmálafélaga. Samt getur kosningastjóri stjórnarflokks setið í stjórninni sem beinlínis ræður útvarpsstjóra. Hlutleysið á sem sagt að gilda á fréttastofunni, en ekki við stjórnarborðið. Það er vægast sagt fráleitt.
Alþingismaður má ekki sitja í stjórn RÚV, en framkvæmdastjóri þingflokksins getur þegið sæti. Hvers vegna ætti launaður starfsmaður þingflokks að vera síður bundinn pólitískum hagsmunum en þingmennirnir sjálfir?
Fjölmiðlanefnd hefur sjálf bent á að tilgangur hæfisreglnanna sé að halda virkum þátttakendum í stjórnmálum utan stjórnar RÚV. Það er því bersýnilega rangt að láta eins og tilgangurinn skipti engu máli vegna þess að tiltekið starfsheiti er ekki sérstaklega nefnt í lögunum.
Valnefndin frá 2013
Árið 2013 var ákveðið að fagleg valnefnd kæmi að tilnefningu stjórnar RÚV. Fáeinum mánuðum síðar fékk Alþingi tilnefningarvaldið aftur og var því horfið frá fyrirætlunum um ópólitískt skipaða stjórn. Sjálfstæðið mátti greinilega ekki ganga svo langt að flokkarnir misstu tökin á miðlinum.
Samkvæmt vinnureglum RÚV er stjórnarmönnum bannað að hlutast til um fréttaflutning. Það bann eyðir ekki fyrirliggjandi hagsmunaárekstrinum. Stjórnmálaflokkarnir velja stjórn þess fjölmiðils sem á að veita þeim aðhald og almenningur á bara að borga og trúa því að allt sé hlutlaust og eðlilegt.
Hlutverk RÚV, eins og lagt er upp með, er að veita stjórnvöldum aðhald, en ekki að vera undir stjórn fólks sem starfar við pólitíska hagsmunagæslu fyrir stjórnvöld. Það er ekki hægt að bjóða landsmönnum endalaust upp á þessa vitleysu.
Krafa um afsögn eða lagabreytingu
Lög sem þjóna ekki tilgangi sínum eru eðli máls samkvæmt slæm lög. Lög sem eiga að tryggja hlutleysi en eru misnotuð til að tryggja hlutdrægni þjóna öfugum tilgangi.
Það hlýtur að vera eðlileg krafa að virkir þátttakendur í flokkapólitík segi af sér stjórnarsetu hjá RÚV eða verði leystir frá henni með lögmætum hætti. Ef lögin standa ekki vörð um sjálfstæði miðilsins verður að breyta þeim. Almenningur á heimtingu á raunverulegu hlutleysi, ekki sífelldum fullyrðingum um hlutleysi sem er í engum tengslum við raunveruleikann.
Ef stjórnvöld treysta sér ekki til þess þarf að leggja RÚV niður í núverandi mynd. Landsmenn eiga ekki að þurfa að fjármagna þetta hlutleysisleikhús fáránleikans.