Hilmar Þór Hilmarsson skrifar:
Mánudaginn 7. september 2026 birti Donald Trump forseti Bandaríkjanna mynd af korti á samfélagsmiðlum þar sem meðal annars Ísland, Grænland, Kanada og Mexíkó eru þakin bandaríska fánanum. Enginn texti eða útskýring fylgdi færslunni. Kortið hefur vakið mikla athygli á Íslandi og leitt til opinberra mótmæla Íslenskra stjórnvalda. Eins hafa allir helstu fjölmiðlar landsins fjallað ítarlega um málið og spurningar vaknað um virðingu Bandaríkjanna fyrir fullveldi Íslands.
Í umræðum meðal almennings veltir fólk því meðal annars fyrir sér hvort um sé að ræða grín eða vísbendingu um einhvers konar stórveldisáform Bandaríkjanna, sérstaklega í ljósi þess að Trump hefur áður sýnt því áhuga að kaupa eða yfirtaka Grænland.
Varðandi kortið sem Donald Trump birti þá er ljóst að Bandaríkin líta á Norður-Atlantshaf og hluta norðurslóða sem sitt áhrifasvæði (framhald af Monroe-kenningunni). Kortið með Ísland rautt getur þess vegna verið mistök frekar en vísvitandi ögrun. Samt er alveg ljóst að Bandaríkin telja lofthelgi og hafsvæðið í kringum Íslands mikilvægt fyrir sitt eigið þjóðaröryggi. Stórveldasamkeppin fer nú harðnandi á þessu svæði og Ísland og mun ekki fara varhluta af því.
Landfræðileg lega Íslands er sterkasta samningsstaða okkar
Í stað reiði ætti Ísland að benda á landfræðilega legu sína sem ómissandi fyrir varnarhagsmuni Bandaríkjanna og Norður Ameríku. Ísland á að vera samstarfsaðili Bandaríkjanna í öryggismálum fremur en land sem þarf að þvinga til samstarfs. Við eigum að leggja áherslu á sameiginlega öryggishagsmuni Bandaríkjanna og Íslands. Hugmyndin um að tryggja öryggi Íslands með ESB aðild voru mistök. Alþjóðastofnanir eins og ESB sem samanstendur að 27 þjóðríkjum geta ekki veitt smáríkjum vernd gegn stórveldi.
Það er búið að tala við sendiherra Bandaríkjanna vegna málsins. Í svona máli er brýnt að smáríki sýni ró og yfirvegun í sínum viðbrögðum. Öll frekari samskipti við Bandarísk yfirvöld vegna málsins ættu að fara fram bak við luktar dyr að mínu mati, ekki í fjölmiðlum. Besta leiðin fyrir Ísland er að vinna að því að varnarsamningurinn við Bandaríkin standi traustum fótum og láta umræðuna um kortið fjara út.
Hilmar Þór Hilmarsson
Prófessor