Ragnar Rögnvaldsson skrifar:
Það þarf ekki að vera fordómafullt að hafa áhyggjur. Þvert á móti getur það verið merki um ábyrgð, virðingu og rótgróna þjóðarvitund. Ísland er lítið samfélag sem hefur í gegn um aldir staðið vörð um sín gildi – samstöðu, sjálfstæði, dugnað,sögu, fjölskyldutengsl og traust samfélag. En þessi gildi eru ekki sjálfsögð. Þau eru brothætt. Og þau eru nú undir miklu álagi.
Við sjáum þetta í kringum okkur – ekki síst í Svíþjóð, þar sem „opið samfélag“ og takmarkalaus innflytjendastefna hefur skapað djúp og sársaukafull vandamál. Svíþjóð hefur í dag fleiri sprengjuárásir miðað við höfðatölu en nokkurt annað ríki í Evrópu. Árið 2023 voru 62 manns drepnir í skotbardögum – meirihluti í innflytjendatengdum gengjastríðum. Þetta er staðfest af sænskum lögregluyfirvöldum og alþjóðlegum fjölmiðlum á borð við BBC og Reuters. Þegar jafnaðarmannaflokkurinn, sem hafði leitt opna stefnu í áratugi, loksins viðurkenndi að „móttökugeta Svíþjóðar væri þrotin“ var það of seint.
Hjálparstarf í nágrenni átakasvæða
Við Íslendingar höfum enn tækifæri til að bregðast við. En þá verðum við að segja það upphátt: Við höfum ekki burði til að taka við öllum sem vilja betra líf. Við höfum ekki burði til að leysa vandamál heimsins með því að flytja þau heim í hérað. Við þurfum að snúa vörn í sókn.
Við þurfum að ná stjórn á landamærum Íslands – raunverulegri stjórn. Það þýðir að við þurfum að endurskoða hælisumsóknakerfið, herða skilyrði og setja skýrar reglur um aðlögun og þátttöku í samfélaginu. Það þýðir líka að við stöndum með okkar þjóð og okkar gildum – íslenskri tungu, menningu, reglum og lögum – og gerum þau ekki að samningsatriðum til að þóknast fjölmenningarhyggju sem hefur brugðist annars staðar.
Við eigum að sýna samkennd – en ekki að fórna sjálfum okkur. Við getum hjálpað meira, með áhrifameiri hætti, með því að styðja hjálparstarf í nágrenni átakasvæða. Það er bæði mannúðlegra og ábyrgara að hjálpa fólki á þeirra eigin forsendum, í þeirra eigin heimshluta. Til dæmis kostar það margfalt minna að hjálpa flóttafólki í nágrannaríkjum en að flytja það til Íslands og koma því inn í okkar dýra velferðarkerfi – án trygginga fyrir aðlögun eða virðingu fyrir lögum og menningu.
Ísland gæti orðið að nýrri útgáfu af Svíþjóð
Við sem stöndum með stefnu Miðflokksins vitum að það eru ekki fordómar að vilja vernda samfélagið sem við elskum. Það er ekki rasismi að vilja að fólk sem hingað kemur læri íslensku, virði lög og taki þátt. Það er einfaldlega skynsemi. Ef við töpum íslenskum gildum – þá töpum við öllu.
Við verðum að taka umræðuna. Við verðum að hætta að hlusta á þá sem vilja þagga niður gagnrýni með stimplunum. Við verðum að standa vörð – um Ísland, um menningu okkar, um sjálfstæði okkar, um börnin okkar og framtíðina. Því ef við gerum það ekki, þá verður Ísland að nýrri útgáfu af Svíþjóð.
Og það vill ég ekki!