Meðvirkni og fúsk

Það hefur lengi fylgt okkur Íslendingum að vera umburðarlyndir og almennt hvetjandi gagnvart náunganum. Smæð samfélagsins spilar ugglaust inn í, en það er líka fallegt og hefur lengstum verið okkur til gæfu, eða alveg þangað til góðmennskan, umburðarlyndið og hvatningin er orðin að hreinni meðvirkni. Ekki síst meðvirkni með vanhæfni, fúski og lögleysu. Þannig hefur ýmiss konar “vitleysa” fengið að viðgangast, gjarnan á vængjum misskilinnar gæsku og dyggðaskreytinga…

Augljósustu dæmin um afleiðingar meðvirkninnar eru hvernig við misstum tökin á velferðarmálum, menntamálum, útlendingamálunum, löggæslunni, réttarvörslukerfinu og nú síðast löggjafarvaldinu sjálfu, með stórskrítnum embættisfærslum nokkurra ráðherra og fúkyrðaflaumi forseta Alþingis síðast í gær. Þjóðin starir bara á í forundran eins og skilnaðarbarn undir rifrildi foreldranna og æðisköstum.

Auglýsing

Við eigum heimtingu á því sem kjósendur og skattgreiðendur að þeim sem treyst hefur verið fyrir æðstu embættum þjóðarinnar séu til þess hæf, fari að lögum og gæti hagsmuna landsmanna umfram allt annað. Þetta er ekki persónulegt gegn einstökum ráðherrum, sem örugglega kunna ýmislegt og eru ugglaust gott fólk, en eru kannski bara á röngum stað á kostnað þjóðarinnar og ábyrgð samstarfsflokkanna?

Vanhæfir embættismenn og lögleysa

Nike-skóamálið er bara ein birtingarmynd, brottvikning skólameistarans önnur, fúkyrðaflaumur þingforseta enn önnur og svo öll dæmasúpan af lögleysu og meðvirkni með vanhæfum embættismönnum innan lögreglunnar og saksóknaraembættisins.

Ekki var hægt að leysa starfsmannamál innan saksóknaraembættisins, Héraðssaksóknari hefur komist upp með ólöglegar starfsaðferðir og vistun gagna svo sannað hefur verið, brigslað hefur verið um hylmingu gagna einnig. Fátt hefur verið gert og hann situr sem fastast, í færum til að valda frekari miska og lögleysu. Segjum bara eins og er.

Eðlilegar hæfniskröfur

Við gerum menntunar- og þjálfunarkröfur til lækna, hjúkrunarfólks, flugmanna, atvinnubílstjóra og allra annarra sem mögulega hafa líf okkar með höndum. Við myndum ekki horfa undan ef við sæjum skurðlækninn sjússa sig fyrir aðgerð eða flugstjórann stíga ölvaðan um borð. Eiga að gilda önnur lögmál og kröfur til æðstu embættismanna þjóðarinnar sem fara með sitt vald í okkar umboði?

Hættum þessari meðvirkni og gerum eðlilegar kröfur.

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, viðskiptafræðingur og fyrrverandi bankamaður

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing