Myrkraverk í dýravernd á Íslandi

Árni Stefán Árnason skrifar:

Með lögum skal land byggja

Í fyrstu grein laga um velferð dýra segir:

Auglýsing

„Markmið laga þessara er að stuðla að velferð dýra, þ.e. að þau séu laus við vanlíðan, hungur og þorsta, ótta og þjáningu, sársauka, meiðsli og sjúkdóma, í ljósi þess að dýr eru skyni gæddar verur. Enn fremur er það markmið laganna að þau geti sýnt sitt eðlilega atferli eins og frekast er unnt.“

Þing og framkvæmdarvald bera ríka ábyrgð

Að undanskildum nokkrum ákvæðum byggja lögin á þessari grundvallarreglu.

Settar hafa verið reglugerðir með stoð í lögunum, meðal annars um búfjárrækt og gæludýrahald. En stenst sú lagastoð?

Í reglugerðum um búfjárhald er sérstaklega vegið að velferð dýra þegar tekið er mið af meginreglu laganna. Vegið er að góðri líðan þeirra, ótti framkallaður og þeim valdið þjáningum.

Þetta á sérstaklega við um alifuglaeldi, svínaeldi og loðdýraeldi. Það á einnig við um hvalveiðar og líklega hreindýraveiðar og stangveiði.

Yfirdýralæknir hefur viðurkennt að aðstæður minka á loðdýrabúum samræmist líklega ekki eðlislægum þörfum þeirra. Ég fullyrði að bæta megi aðstæðum svína og að minnsta kosti alifugla í þann hóp.

Við stöndum því frammi fyrir mögulegu broti gegn einni af meginreglum lögfræðinnar, lögmætisreglunni. Hún felur meðal annars í sér að lægra sett réttarheimild má ekki stangast á við lög.

Með öðrum orðum má færa sterk rök fyrir því að ráðherrar sem sett hafa þessar reglugerðir hafi sett ólögmætar reglur.

Þarf Alþingi ekki að taka þetta til skoðunar? Jafnvel umboðsmaður Alþingis?

Það er myrkraverk í íslenskri dýravernd að heimila þjáningar dýra með reglugerðum sem standast mögulega ekki sett lög.

Borgaraleg óhlýðni

Fólk tjáir andstöðu sína við illa meðferð dýra með ólíkum hætti.

Upplýst hefur verið um fjögur innbrot í bú þar sem stundað er það sem kalla mætti nauðeldi búfjár. Þar eru dýr neydd til að búa við aðstæður sem eru fjarri eðlislægum þörfum þeirra, í þágu manneldis.

Þetta gremst mörgum og viðbrögðin eru ólík. Eitt er þó víst: Borgaraleg óhlýðni sem eykur á þjáningar dýra er með öllu óásættanleg.

Líklega er verið að mótmæla illri meðferð dýra. Að minnsta kosti get ég ómögulega komið auga á aðra ástæðu. Aðferðir sem valda dýrunum sjálfum frekari þjáningum vinna hins vegar gegn yfirlýstu markmiði mótmælanna.

Rétta leiðin til að opna augu stjórnvalda er að þrýsta á þingmenn. Það er reyndar gert af og til en viðbrögðin eru engin.

Í stjórnarandstöðu lýsa þingmenn gjarnan yfir vanþóknun sinni á illri meðferð dýra í búfjárhaldi. Þeir gagnrýna Matvælastofnun harðlega fyrir að bregðast ekki við og segja jafnvel að leggja eigi stofnunina niður vegna tómlætis hennar í þessum efnum.

Þegar sömu þingmenn komast í ríkisstjórn verða þeir hins vegar ekki jafn háværir. Hverju sætir það?

Einn þingmaður sem lét sérstaklega til sín taka í þessum málaflokki í stjórnarandstöðu, en gegnir nú ráðherraembætti, er eftirminnilegur í þessu samhengi.

Þarf Alþingi ekki að kanna hvers vegna fólk telur sig knúið til borgaralegrar óhlýðni – og jafnvel til aðgerða sem auka þjáningar dýra – til þess eins að vekja athygli þingsins á þeirri illu meðferð sem dýr sæta daglega?

Það er myrkraverk í íslenskri dýravernd að auka þjáningar dýra í nafni borgaralegrar óhlýðni.

Höfundur er dýraverndarlögfræðingur.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing