Þegar gagnrýnendur verða að „mengun“

Eldur Smári Kristinsson skrifar:

Það er eitt að vara við hatri. Annað er að skilgreina pólitíska andstæðinga sem hatur áður en rök þeirra hafa verið skoðuð. Ríkisútvarpið fjallaði um skýrslu belgísku samtakanna Forbidden Colours, The Hate Review, sem er vægast sagt skrifuð með orðfæri sem er óvenju hlaðið. Þar er Evrópa sögð „menguð“ af svokallaðri „anti-gender movement“ og hreyfingin sögð breiðast út um samfélagið.

Auglýsing

Þarna er ekki lengur aðeins verið að lýsa skoðunum eða pólitískri hreyfingu. Notuð er líking úr heimi sýkla og sjúkdóma. Fólk með aðrar skoðanir verður að „mengun“

Það er ástæða til að staldra við slíkt orðfæri. Sjúkdóms- og sýklalíkingar hafa í gegnum tíðina verið notaðar til að lýsa samfélagshópum og pólitískum andstæðingum sem ógn sem þurfi að hreinsa burt. Það er því fullkomlega málefnalegt að spyrja hvers vegna mannréttindasamtök (sem eru í raun aðeins áróðursveita fyrir fyrfram ákveðið narratív) kjósi yfir höfuð slíka líkingu.

Mengun er nefnilega ekki eitthvað sem maður rökræðir við. Hún er fjarlægð.

Hvar er þá „hatrið“?

Skýrslan setur mjög ólíka hópa undir sama hatt: trúarhreyfingar, stjórnmálaflokka, kvennasamtök sem verja kynbundin rými og samtök samkynhneigðra sem gagnrýna til að mynda transferli barna.

Það er ekki þar með sagt að öll þessi sjónarmið séu rétt eða að engin þeirra séu fordómafull. En lýðræðislegt samfélag á að geta greint á milli hatursorðræðu, pólitískrar andstöðu og gagnrýni á stefnu.

Samkynhneigður maður sem telur að samkynhneigð eigi að skilgreinast út frá kyni þeirra sem maður laðast að er ekki sjálfkrafa fordómafullur haturspési.

Kona sem telur að kynbundin rými eigi áfram að vera kynbundin er ekki sjálfkrafa óvinur hinsegin fólks.

Foreldrar sem spyrja um langtímaáhrif læknisfræðilegra inngripa á börn eru ekki þar með komin í flokk með öfgamönnum.

Skýrslan flokkar engu að síður þetta allt sem mengun og gefur nær því í skyn að samevrópskt átak meindýraeyðara sé nauðsynleg.

RÚV verður að velta öllum hliðum

Hér verður gagnrýni mín á RÚV alvarleg. Einstefnuleg nálgun RÚV er orðinn fastur liður eins og venjulega – þvert á lög um Ríkisútvarpið.

Samkvæmt lögum um Ríkisútvarpið ber því að gæta sanngirni og hlutlægni, leita upplýsinga frá báðum eða öllum aðilum og kynna sjónarmið þeirra sem jafnast. RÚV á jafnframt að vera óháð hugmyndafræðilegum hagsmunum og stunda vandaða og gagnrýna fréttamennsku.

Hvers vegna voru þeir íslensku aðilar sem skýrslan nefnir ekki beðnir um viðbrögð?

LGB Samtökin, ég, undirritaður, Iva Marin Adrichem og  Drenglyndi eru sérstaklega nefnd, en var leitað eftir sjónarmiðum okkar?Miðflokkurinn og formaður hans er einnig nefndur sem vettvangur þessarar þróunar á Alþingi. Var hann beðinn um að svara? Og ef svo var, hvar birtust þau svör?

Þetta eru ekki aukaatriði. Ef einn aðili segir um annan að hann tilheyri „hatursneti“ eða „anti-gender movement“ á hinn aðilinn að fá að svara fyrir sig.

Annars er verið að miðla lýsingu annars hagsmunaaðila á andstæðingum hans án þess að almenningur fái að heyra andstæðinginn sjálfan.

RÚV má auðvitað segja frá skýrslunni. Það má segja frá niðurstöðum hennar og gagnrýna hana eða taka þær alvarlega. En það verður að gera greinarmun á því að Forbidden Colours segir eitthvað og því að það sem Forbidden Colours segir sé hlutlaus lýsing á veruleikanum. Þetta er einmitt hlutverk gagnrýninnar fréttamennsku.

Lýðræði þolir ágreining

Lýðræði ætti ekki að þurfa að verja rétt fólks til að spyrja spurninga um kynbundin rými, íþróttir, meðferðir barna eða skilgreiningar á kyni í lögum.

Það má vera ósammála þeim sem spyrja þessara spurninga. Það má gagnrýna rök þeirra. En það er allt annað en að gera þá að „mengun“ sem þurfi að stöðva eða uppræta.

Lýðræði byggist ekki á því að allir séu sammála. Það byggist á því að fólk geti verið ósammála án þess að vera afmennskað.

Þess vegna ætti RÚV að gera meira en að endurflytja skoðanir og áróður Forbidden Colours. Það ætti að spyrja gagnrýninna spurninga um hann og fyrst og fremst að gefa þeim sem eru settir undir merki „anti-gender“ raunverulegt tækifæri til að svara.

Ég hafna því t.a.m. alfarið að vera „anti-gender“. Ég er „pro-reality, pro-science, pro-evidence based medicine, pro-women, pro-gay“ til að nefna dæmi.

Leitaði RÚV eftir viðbrögðum allra þeirra íslensku aðila sem skýrslan nefnir?

(Ég náttúrulega veit svarið við þessu, því ég hef auðvitað rætt við hina aðilana sem koma fyrir í skýrslunni, en gefum okkur að Ríkisútvarpið hafi, svona fyrir kurteisissakir, ef ekki annað, sinnt lagalegu skyldu sinni.)

Ef já, þá ætti almenningur að fá að sjá þau.

Ef nei, þá þarf RÚV að útskýra hvers vegna.

Því ríkisfjölmiðill á ekki að ákveða fyrir almenning hverjir séu góðu og vondu aðilarnir í menningarstríði samtímans.

Hlutverk hans er að upplýsa almenning um ágreininginn – og leyfa öllum hliðum að koma sínu á framfæri!

Óhugnanlegt orðalag skýrslunnar

Orð eru ekki hlutlaus þegar þau eru notuð til að lýsa pólitískum andstæðingum. Að kalla ákveðnar hugmyndir rangar, skaðlegar eða órökstuddar er hluti af eðlilegri lýðræðisumræðu. Að kalla fólk eða hugmyndir „mengun“ færir umræðuna á annað stig.

Mengun er ekki eitthvað sem maður rökræðir við. Hún er fjarlægð.

Þetta er ekki nýtt fyrirbæri í stjórnmálasögu. Fræðimenn hafa ítrekað bent á hvernig sjúkdóma-, sýkla- og mengunarlíkingar hafa verið notaðar til að gera tiltekna hópa að líffræðilegri ógn. Susan Sontag benti á hvernig sjúkdómslíkingar í stjórnmálum geta fært umræðuna frá rökræðum um hugmyndir yfir í hugmyndina um að eitthvað sé „illskeytt“, hættulegt og þurfi að útrýma. Hún rakti meðal annars hvernig nasistar líktu gyðingum við sjúkdóma og hvernig sjúkdómslíkingar voru einnig notaðar í bolsévískri pólitískri orðræðu.

Sagnfræðingurinn Christoph Gradmann hefur sömuleiðis rannsakað hvernig orðfæri bakteríufræðinnar fluttist inn í pólitíska umræðu í Þýskalandi keisaratímans. Pólitískir andstæðingar voru þá stundum settir fram sem sýklar eða hættulegar lífverur sem samfélagið þyrfti að verja sig gegn.

Ríkisfjölmiðill á ekki að vera megafónn fyrir slíkan málflutning þegar umdeild pólitísk og vísindaleg mál eru annars vegar.

Þess vegna ætti RÚV ekki að taka upp slíkt orðfæri gagnrýnislaust. Það ætti að spyrja spurninga um það, afhjúpa forsendur þess og gefa þeim sem eru flokkaðir undir það raunverulegt tækifæri til að svara.

Annars er hættan sú að almannaþjónustumiðillinn verði ekki lengur vettvangur þar sem deilan fer fram. Hann verður hluti af deilunni.

Höfundur er Alþjóðafulltrúi LGB samtakanna og meðstjórnandi LGB International

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing