Verndum trúfrelsið – nýjasta skotmark hinsegin hreyfingarinnar 

Kaþólska kirkjan talar skýrt og hreint: Hún er andvíg öllum kynlífsathöfnum utan hjónabands, andvíg fóstureyðingum og andvíg hjónaskilnaði. Og hvað með það?  Hún má það. Páfinn er kaþólskur. Þvílíkur hryllingur að búa í samfélagi fjölbreyttra skoðana!

En sjáið nú hvernig Sýn, RÚV og hinir stóru meginstraumsfjölmiðlar ráðast á trúfélagið eins og þessar lífsskoðanir séu einhvers konar glæpur gegn mannkyni.

Þetta snýst ekki um „vernd samkynhneigðra“. Ef þetta snerist um að koma einhverjum hommum og lesbíum til hjálpar, þá hefðu fjölmiðlar og „hinsegin“ hreyfingin beint spjótum sínum að múslimum sem hengja homma upp í krana eða barnageðlækna sem vilja gelda okkur eins og rakka.

Auglýsing

Þetta er hrein og klár árás á trúfrelsið og tjáningarfrels. Þetta er tilraun til að þagga niður í þeim sem þora að segja að guðslög eru æðri veraldlegum lögum. Eins og Jakob Rolland, kanslari kaþólsku kirkjunnar á Íslandi, sagði skýrt í viðtali við Vísir í dag: „Það er ekki Alþingi sem skipar mér hvað ég á að segja.“

Hinar raunverulegu bælingarmeðferðir

En nú kemur hin sanna hneykslismynd. Þau sömu samtök sem hrópa hæst um „bælingarmeðferðir“ – Samtökin ’78, ´ásamt Barna- og unglingageðdeild Landsspítala (BUGL) og skólayfirvöld – eru sjálf að stunda kerfisbundnar, ríkisstyrktar og ógagnreyndar meðferðir  sem valda raunverulegum og oft óafturkræfum skaða á börnum og unglingum. Gegn stelpustrákum og strákastelpum.

Dæmi um blekkingar, nauðung og hótanir þeirra:

  • „Kyni er úthlutað við fæðingu“ – hrein lygi.
  • „Viltu trans barn eða bara látið barn“ – blekking og hótun í einu.
  • „Ef þú samþykkir ekki breytta kynskráningu sviptum við þig forræðinu!“ – beinlínis hótanir og nauðung.
  • „Hormónablokkerar eru fullkomlega afturkræfir“ – stórfelld og hættuleg lygi, eins og alþjóðlegar skýrslur (Cass Review o.fl.) hafa sýnt.
  • „Transkonur eru konur“ – blekking sem þröngvað  er á börn í skólum og jafnvel á fullorðið fólk.
  • „Börn geta fæðst í röngum líkama“ – ein hættulegasta og óvísindalegasta fullyrðing nútímans.

Og þetta þurfa öll börn í landi með skólaskyldu að sitja undir. Foreldrar sem þora að mótmæla eru kallaðir hatursfullir, transfóbískir og jafnvel hættulegir. Þetta er ekki frjáls umræða. Þetta er hugmyndafræðilegt ofbeldi gegn börnum og fjölskyldum þeirra.

Samtökin ’78 og transteymi BUGL hafa gert kynræna ruglingskennd að tískufyrirbæri. Þau hafa ýtt á lyfjagjöf og félagslega umbreytingu á börnum sem í flestum tilfellum hefðu einfaldlega vaxið upp úr þessu ef þau hefðu fengið frið. Þetta er nákvæmlega það sem þau ásaka kaþólsku kirkjuna og önnur trúfélög um að gera – aðeins með mun meira valdi, ríkisstyrkjum og læknisfræðilegum íhlutunum.

Kirkjan býður upp á andlega leiðsögn. Hinsegin samtökin bjóða upp á hormónablokka, innrætingu, kynskráningarbreytingar og hótanir um að taka börn frá foreldrum. Hver er raunverulega að stunda bælingarmeðferðir?

Tími til kominn að snúa við blaðinu

Trúfrelsið á að gilda fyrir alla – líka þá sem trúa því að maðurinn sé skapaður sem karl og kona. Tjáningarfrelsið á að gilda fyrir alla – líka þá sem segja að börn eigi ekki að verða tilraunadýr fyrir nýjustu kynjaídeólogíu öfgafullra vinstri manna.

Ef við leyfum Samtökunum ’78, BUGL og skólum að halda áfram að ljúga, hóta og skaða börn undir yfirskini „mannréttinda“ þá erum við ekki að vernda svokallað “hinsegin” fólk. Við erum að fórna næstu kynslóð á altari falskra guða.

Verjum börnin. Verjum sannleikann. Verjum trúfrelsið.

Höfundur er alþjóðafulltrúi LGB International

Eldur Smári Kristinsson

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing