Hilmar Þór Hilmarsson skrifar:
Í apríl 2008 var ályktað á leiðtogafundi NATO í Búkarest að Úkraína færi í NATO. Ljóst var að Rússland setti sig á móti þessu og er oft vísað til þess að James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna hafi í febrúar 1990 lofað Míkhaíl Gorbatsjov, leiðtoga Sovétríkjanna að NATO myndi ekki stækka „eina tommu til austurs“ ef sameinað Þýskaland yrði innan NATO.
Um þetta er deilt og aldrei var gerður skriflegur samningur um þetta mál, en síðan hefur NATO stækkað sjö sinnum, (sjá töflu).
| NATO ríkin eru nú 32. 16 lönd bæst við NATO síðan Sovétríkin féllu. |
| 1. 1999 Pólland, Tékkland og Ungverjaland 2. 2004 Búlgaría, Eistland, Lettland, Litáen, Rúmenía, Slóvakía og Slóvenía 3. 2009 Albanía og Króatía 4. 2017 Svartfjallaland 5. 2020 Norður Makedónía 6. 2023 Finnland 7. 2024 Svíþjóð |
| Heimild: NATO |
Stækkun NATO átti að minnsta kosti sinn þátt í að koma Úkraínustríðinu af stað þó hér sé því ekki haldið fram að stækkun NATO réttlæti þessa ólöglegu innrás inní Úkraínu.
Úkraínustríðið sem hófst í febrúar 2022 og stendur enn yfir varð til þess að Finnland gekk í NATO 2023 og Svíþjóð 2024. Þar með vöru öll löndin í Norðurskautsráðinu komin í NATO nema Rússland. Þessi lönd eru Bandaríkin, Finnland, Ísland, Kanada, Danmörk, Noregur, og Svíþjóð. Rússland stóð eitt eftir utan Norðurskautsráðsins.
Í framhaldi að þessu fer Rússland að reyna að styrkja sína stöðu á Norðurslóðum og vinna nánar með Kína. Kína er útflutningsdrifið hagkerfi í miklum vexti og þarf aðgang að siglingaleiðum og auðlindum og skilgreinir sig sem „near-Arctic state.“
Með aukinni viðveru Rússlands og Kína á norðurslóðum fer Donald Trump Bandaríkjaforseti að tala að Rússnesk og Kínversk skip séu útum allt í kringum Grænland. Vegna þessa meðal annars talar hann um styrkja stöðu Bandaríkjanna og ásælist Grænland. Með öðrum orðum þjóðaröryggi Bandaríkjanna krefst yfirráða á Grænlandi og um tíma talaði Trump um að Kanada yrði 51 fylki Bandaríkjanna.
Þessi atburðaráðs hefur svo vakið áhyggjur á Íslandi og sumir álykta að nú þurfi Ísland að gagna í ESB þó það hafi ekki sameignlegan her og sé háð Bandaríkjunum í varnarmálum. Ýtir þetta svo á endanum Íslandi inní ESB?
Hilmar Þór Hilmarsson
Prófessor við Háskólann á Akureyri