Föstudagurinn langi er einn helgasti dagur kristinna manna en dagurinn er einnig sérstakur hátíðisdagur óvirkra alkóhólista og aðstandenda þeirra á Íslandi. Stofnfundur AA samtakanna hér á landi var haldinn þann 16. apríl árið 1954 sem bar einmitt upp á þessum helga degi. Þess vegna hefur AA fólk á Íslandi jafnan haldið upp á þessi tímamót á þessum degi með stórum hátíðarfundi ár hvert.
Engin undantekning verður á því þetta árið en risa stór afmælisfundur samtakanna verður haldinn að þessu sinni í Háskólabíói, föstudaginn langa 18. apríl 2025 kl. 20:00.
Á Íslandi eru starfandi um 360 deildir innan AA-samtakanna um land allt. Hver þessara deilda heldur að minnsta kosti einn fund í viku.
Á hátíðarfundinum er hefð fyrir því að AA fólk tjái sig í pontu auk þess sem einn gestur frá Al Anon, sem eru samtök aðstandenda alkóhólista, leggi orð í belg. Allt fundarefnið verður kynnt jafnharðan á táknmáli.
Samkvæmt tilkynningu frá AA samtökunum verður húsið opnað kl. 19:00 og eins og á öllum góðum AA fundum verður rjúkandi heitt og ilmandi kaffi á könnunni.