Götulokanir verða í gildi í dag frá klukkan 07-01 og afmarkast lokunarsvæði af Snorrabraut, Gömlu Hringbraut, Ægisgötu og Mýrargötu.
Hér má sjá kort af því hvaða götur verða lokaðar og fleira.
Gestir Menningarnætur eru hvattir til þess að skilja bílinn eftir heima og nýta sér aðra samgöngumáta. Ókeypis verður í strætó sem stoppar við Hlemm, Hallgrímskirkju og Gömlu Hringbraut.
Þau sem koma á bíl geta lagt á bílastæðum við Kirkjusand eða í Borgartúni og tekið skutlur þaðan sem keyra fólk að Hallgrímskirkju.
Skutlurnar ganga á milli Hallgrímskirkju og bílastæða frá klukkan 12-01. Með því að nýta sér strætó eða skutlur frá bílastæðum kemst fólk mun nær hátíðarsvæðinu heldur en hægt er ef reynt er að leggja sem næst miðborginni.