Hlín krefst þess að fá tölvupósta frá Pressunni: „Dularfullt að þeir neiti að afhenda mér gögnin“

Hlín Einarsdóttir segir stjórnendur Vefpressunnar neita að afhenda sér tölvupósta sem hún fékk senda á netfangið hlin@bleikt.is síðan hún var ritstjóri síðunnar.

Tölvupóstana hyggst Hlín nota í málaferlum sem framundan eru vegna fjárkúgunarmáls forsætisráðherra annars vegar og nauðgunarkæru hins vegar. Þetta kemur fram á Stundinni.

Auglýsing

Hlín var handtekin á dögunum ásamt Malín Brand, systur sinni, fyrir að reyna að kúga fé út úr forsætisráðherra. Annar maður kærði þær svo fyrir fjárkúgun skömmu síðar en í kjölfarið kærði Hlín sama mann fyrir nauðgun.

Vefpressan er að stórum hluta í eigu Björns Inga Hrafnssonar, fyrrverandi sambýlismanns Hlínar. Hún segir í samtali við Stundina að hún eigi fullan rétt á þessum gögnum sem að stórum hluta eru persónuleg.

Það er mjög dularfullt að þeir skuli neita að afhenda mér gögnin. Ég krefst þess að fá aðgang að tölvupósti mínum en stjórnendur Vefpressunnar eru að draga lappirnar. Það er mjög dularfullt að þeir skuli neita að afhenda mér gögnin.

Kolbrún Garðarsdóttir, lögmaður Hlínar, staðfestir í samtali við Stundina að stjórnendur fjölmiðlafyrirtækisins hafi ekki afhent henni gögnin.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing