Kínverjarnir fljótir að rífa upp símana þegar þeir sjá Eið Smára úti á götu

Eiður Smári Guðjohnsen segir að lífið í Kína hafi komið skemmtilega á óvart en hann leikur nú með Shijiazhuang Ever Bright í kínversku deildinni. Þetta kemur fram í viðtali við Eið Smára á Fótbolta.net.

„Þetta er í rauninni bara allt annar heimur. Margt skrýtið og margt mjög skemmtilegt og mikið ævintýri,“ segir hann í viðtalinu á Fótbolta.net.

Auglýsing

„Ég hef alltaf verið nokkuð hrifinn af kínverskum mat. Kannski ekki á hverjum degi en það er allt gert til að við náum að aðlagast, Evrópubúarnir. Það er sérstakur matseðill og haldið utan um allar okkar þarfir.

Það er túlkur sem fer með okkur út um allt og þjálfarateymið er frá Búlgaríu og veir hvernig á að snúa sér í hinum og þessum aðstæðum.“

Sjá einnig: Leikur Hollands og Íslands sýndur í beinni útsendingu á risaskjá á Ingólfstorgi

Eiður er ansi áberandi úti á götu, verandi talsvert yfir meðalhæð í Kína og ljóshærður í þokkabót. Hann segir í viðtalinu á Fótbolta.net að fólk sé fljótt að rífa upp símana þegar það uppgvötast hver hann er, enda mikilll áhugi á fótbolta í Kína.

„Það getur orðið múgæsingur þegar einn fattar úti á götu hver maður er og allir rífa upp símann,“ segir hann léttur.

„Það er bara eitthvað sem fylgir þessu. Margir muna eftir mér úr Chelsea og Barcelona og að vera stór, ljóshærður maður í Kína þá ertu soldið áberandi.“

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing