today-is-a-good-day

„Mask Off“ eftir Future eða „Top Dogz“ eftir Looptroop?

Array

Á þriðjudaginn (14. maí) rataði myndbandsútgáfa af öðrum þætti hlaðvarps SKE á netið (sjá hér að neðan).

Eins og fram kemur á SKE.is var kveikjan að öðrum þætti hlaðvarpsins viðtal SKE við sænska rapparann Promoe—úr hljómsveitinni Looptroop—frá því í mars; í viðtalinu spurði blaðamaður Promoe út í lagið Mask Off eftir bandaríska tónlistarmanninn Future og þá vegna þess að lagið er smíðað í kringum hljóðbút frá laginu Prison Song eftir Carlton Williams og Tommy Butler—alveg eins og lagið Top Dogz eftir hljómsveitina Looptroop.

Nánar: http://ske.is/grein/samples-go-in-cycles-but-styles-change

Aðspurður hvort að hann hefði skoðun á laginu Mask Off svaraði Promoe með eftirfarandi orðum:

„Sömplin endurtaka sig, en stílarnir breytast. Ég er ekki að dæma smekk annarra. Og ég verð að viðurkenna að ég hef ekki hlustað á Mask Off sjálfurSérhver kynslóð hefur sínar eigin aðferðir þegar það kemur að því að veita þeirri orku og þeim skilningi sem í býr í brjósti mannskepnunnar útrás – og svo eru einnig tengingar hvað framvindu tímans varðar, sem í þessu tilfelli tengist tónlistinni sem við röppum yfir. Þetta er í raun mjög áhugavert; hvernig við löðumst, annars vegnar, að sama hlutnum, en, hins vegar, hvernig útkoman er svo mismunandi.“

Út frá þessum hugleiðingum Promoe veltir SKE því fyrir sér hvað útskýrir þessa gjá á milli kynslóða: Hvers vegna fíla sumir Mask Off eftir Future en ekki Top Dogz eftir Looptroop—og öfugt.

Sérstakar þakkir: Eiríkur Sigurðarson
Ráðgjöf: Anna Marsý
Handrit og lestur: RTH
Upptaka: Benedikt Freyr

Auglýsing

læk

Instagram