• Fréttir
    • Fólk
    • Pólitík
    • Útlönd
  • Myndbönd
    • Nútímafólk
    • Nútíminn
    • Grín
    • Namm
  • Matur
  • Alvarpið
    • Dagskrá og leiðbeiningar
    • Popp og fólk
    • Bíó Tvíó
    • Icetralia
    • Áhugavarpið
    • Eusebio
    • Englaryk
    • Eldri hlaðvörp
      • Sunnudagsleikhúsið
      • Viskíhlaðvarp Majó
      • Virðulegi forseti
      • Þjóðarskútan
      • Spinnipúkinn
      • Fólk er fífl
      • Á trúnó
      • Í kasti með Dr. Gunna
      • Útvarp Flatey
      • Mundiru?
      • Trí ló gík
      • Ástin og leigumarkaðurinn
      • Iðnaðartroð
      • Ólíkindatólið
      • Sultukrukkudómurinn
      • Kaffið
      • Júpíter
      • Rými
      • Glerslíparinn
      • Cous Cous og föðurlandið
      • Eftir súpuna sérðu liti hafsins
      • Grínistar hringborðsins
      • Hlaðvarpið með Simon.is
      • Finndið
      • Ísland í dag, Satan
  • Örskýringar
  • Raddir
  • Fréttir
    • Fólk
    • Pólitík
    • Útlönd
  • Myndbönd
    • Nútímafólk
    • Nútíminn
    • Grín
    • Namm
  • Matur
  • Alvarpið
    • Dagskrá og leiðbeiningar
    • Popp og fólk
    • Bíó Tvíó
    • Icetralia
    • Áhugavarpið
    • Eusebio
    • Englaryk
    • Eldri hlaðvörp
      • Sunnudagsleikhúsið
      • Viskíhlaðvarp Majó
      • Virðulegi forseti
      • Þjóðarskútan
      • Spinnipúkinn
      • Fólk er fífl
      • Á trúnó
      • Í kasti með Dr. Gunna
      • Útvarp Flatey
      • Mundiru?
      • Trí ló gík
      • Ástin og leigumarkaðurinn
      • Iðnaðartroð
      • Ólíkindatólið
      • Sultukrukkudómurinn
      • Kaffið
      • Júpíter
      • Rými
      • Glerslíparinn
      • Cous Cous og föðurlandið
      • Eftir súpuna sérðu liti hafsins
      • Grínistar hringborðsins
      • Hlaðvarpið með Simon.is
      • Finndið
      • Ísland í dag, Satan
  • Örskýringar
  • Raddir
Fólk

Baldvin greindist með krabbamein 19 ára gamall: „Ég er í raun rosalega stoltur af sjálfum mér“

12 febrúar, 2019, 11:54 | Ingólfur Stefánsson

Baldvin Rúnarsson var 19 ára gamall, að hefja nám á fjórða ári við Menntaskólann á Akureyri, þegar að hann greindist með stórt heilaæxli. Hann hefur tekist á við sín veikindi af miklu æðruleysi og þótt brekkurnar hafi verið margar og brattar þá fer hann þær að því er virðist með jákvæðni og bjartsýni í farteskinu, vel studdur af fjölskyldu og vinum. Í dag er hann 25 ára og starfar sem knattspyrnuþjálfari hjá Þór á Akureyri. Í fyrsta þætti af Ungt fólk og krabbamein á N4 sagði Baldvin sögu sína.

Baldvin fór í fyrstu skurðaðgerðina rétt fyrir jólin 2013. Hann útskrifaðist síðan sem stúdent vorið 2014, spilaði fótbolta með Magna á Grenivík þá um sumarið og hélt svo út á vit ævintýranna. „Auðvitað er þetta hraðahindrun á manni, ég var þarna búinn að fá inn í skóla á fótboltastyrk í Alabama, Bandaríkjunum. Planið var því bara að ná sér góðum og fara síðan út,“ sagði Baldvin en veikindin áttu eftir að hafa sitt að segja um þau plön.

Baldvin náði einni önn úti í Alabama en í jólafríinu kom í ljós að hann þurfti að fara í aðgerð sem gerði það að verkum að hann neyddist til að hætta í skólanum og flytja aftur heim.

„Mér fannst þetta hundleiðinlegt. Ég var með besta vini mínum úti í náminu og fannst leiðinlegast að þurfa að skilja hann eftir, því ég vildi auðvitað að hann myndi halda áfram. Það var samt ekki nein brjáluð fýla í mér. Ég var bara að flytja heim aftur á Akureyri og gera það sem læknarnir sögðu mér að gera.“

„Maður getur ekki verið undirbúinn fyrir svona. Þó að maður hafi kannski lent áður í einhverjum áföllum. Þá getur maður ekki vitað hvað 19 ára einstaklingur gerir þegar að hann fær svona fréttir. Ég spáði í raun aldrei í þessu, þetta gerðist bara og er bara svona,“ sagði Baldvin sem hefur þrisvar sinnum lagst á skurðarborðið og undirgengist heilaaðgerð. „Það breyttist allt eftir að það var búið að fikta eitthvað í hausnum á manni. Ég hélt alveg áfram að sprikla en ég fann það strax eftir þetta að ég gat ekkert í fótbolta lengur.“

Baldvin segist hafa upplifað það að foreldrum hans hafi liðið verr en honum og að hann hugsi að það sé mjög erfitt að eiga barn í þessari stöðu. Sjálfur hafi hann aldrei fundið fyrir kvíða fyrir aðgerðirnar.

„Ég myndi segja að ég væri heppinn, hvernig ég tók þessu. Ég er þakklátur og stoltur. Ég hef held ég aldrei sagt það áður, en ég er í raun rosalega stoltur af sjálfum mér.“

Ítarlegt viðtal við Baldvin má sjá í heild sinni í spilaranum hér að neðan.

  • Facebook
  • Twitter




Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa:

Ætluðu í sund í Seljavallalaug en var misboðið þegar þeir sáu ástandið: „Það þarf að setja meiri kraft í að upplýsa ferðamenn“

Aron Mola fékk skilaboð frá spænskum leikara sem talar fyrir hann í Ófærð: „Þetta er geggjað!“

Morð án ástríðu





Ætluðu í sund í Seljavallalaug en var misboðið þegar þeir sáu ástandið: „Það þarf að setja meiri kraft í að upplýsa ferðamenn“

Aron Mola fékk skilaboð frá spænskum leikara sem talar fyrir hann í Ófærð: „Þetta er geggjað!“

Morð án ástríðu

Marsþjarkurinn gafst loksins upp

Heimalagað granóla

Stórskemmtileg samskipti viðskiptavinar og þjónustufulltrúa Sjóvá á Akureyri

Fáfnismenn, Fylkismenn og Fjölnismenn

Leðurklædd amma og afi slá í gegn í Eurovision auglýsingu frá Kjörís: „Heldur þú að þau hafi ekki verið ánægð með okkur, barnabörnin“

Dorrit búin að gera ráðstafanir fyrir klónun Sáms: „Sú sérstaka ást sem við deilum mun lifa áfram“

GDRN flutti glænýtt lag í Vikunni með Gísla Marteini

ClubDub sneru aftur í Versló fyrir busaball: „Síðast þegar við fórum í þennan skóla vorum við í stríði“

Tinna fékk bréf frá Hafþóri Júlíusi

  • MEST LESIÐ

    • Aron Mola fékk skilaboð frá spænskum leikara sem talar fyrir hann í ...
    • Leðurklædd amma og afi slá í gegn í Eurovision auglýsingu frá Kjörís: ...
    • Ætluðu í sund í Seljavallalaug en var misboðið þegar þeir sáu ástandið: ...
    • Stórskemmtileg samskipti viðskiptavinar og þjónustufulltrúa Sjóvá á Akureyri
    • Teitur kíkti á kosningaskrifstofu Guðna: „Ertu byrjaður að gera drög að bók ...
  • VIKAN

    • Leðurklædd amma og afi slá í gegn í Eurovision auglýsingu frá Kjörís: „Heldur þú að þau hafi ekki verið ánægð með okkur, barnabörnin“
    • Aron Mola fékk skilaboð frá spænskum leikara sem talar fyrir hann í Ófærð: „Þetta er geggjað!“
    • Stórskemmtileg samskipti viðskiptavinar og þjónustufulltrúa Sjóvá á Akureyri
    • Baldvin greindist með krabbamein 19 ára gamall: „Ég er í raun rosalega stoltur af sjálfum mér“
    • Ætluðu í sund í Seljavallalaug en var misboðið þegar þeir sáu ástandið: „Það þarf að setja meiri kraft í að upplýsa ferðamenn“

Örskýringar

Örskýring: Pálmatré…í Reykjavík?

Örskýring: Afhverju eru allir að tala um málverk Jóns Gnarr?

Örskýring: Afhverju eru áhrifavaldar í fýlu við Neytendastofu?

Meira

Ekki missa af þessum

Aron Mola fékk skilaboð frá spænskum leikara sem talar fyrir hann í Ófærð: „Þetta er geggjað!“

Tinna fékk bréf frá Hafþóri Júlíusi

Pökkuðu aleigunni niður og eru á leiðinni upp að grunnbúðum Everest

Vilhelm Neto, Steiney og Starkaður í nýrri auglýsingu Höldum Fókus: „Bjóst ekki við þessu“

Sóli Hólm með ótrúlega Sigmundar Davíðs eftirhermu í Harmageddon: „Þetta er fáránlega vel gert“

Nútíminn

Auglýsingar
Um Nútímann