Hluthafaspjallið
Hluthafaspjall ritstjóranna fer að þessu sinni í áramótauppgjör um leið og reynt er í það hvað framundan er á nýju ári. Til okkar komu góðir gestir en Magnús Harðarson forstjóri Kauphallarinnar reið á vaðið og fór yfir helstu tölur ársins í Kauphöllinni og hvaða væntingar fjárfestar geta haft um skráningar á næsta ári. Gunnar Baldvinsson, forstjóri Almenna lífeyrissjóðsins, fór yfir stöðu lífeyrissjóðanna á íslenskum hlutabréfamarkaði en umfang þeirra er mikið og ræddi Gunnar meðal annars hvernig standa ætti að fjárfestingu þeirra innanlands og erlendis.
Andrea Sigurðardóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu, fór yfir viðhorf meðal stjórnenda í viðskiptalífinu en kannanir sýna þverrandi bjartsýni. Um leið fór hún yfir hið pólitíska ástand og áhrif þess á viðskiptalífið. Að lokum komu þeir Snorri Jakobsson, hagfræðingur og eigandi Jakobsson Capital og Eggert Aðalsteinsson, greinandi hjá Kviku banka, og rýndu í kristalskúluna! Hvers sé að vænta á nýju ári og á hvaða félög og geira fjárfestar ættu að horfa. Semsagt: Stútfullur þáttur af áhugaverðri umræðu sem enginn fjárfestir getur látið framhjá sér fara.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift
