Hluthafaspjallið | Íslandsbanki og Bláa lónið í sóknarhug

Hluthafaspjallið

Hluthafaspjallið kemur víða við núna. Ritstjórarnir, þeir Jón G. Hauksson og Sigurður Már Jónsson, fara yfir hvað er að gerast í viðskiptalífinu og íslensku kauphöllinni. Þar er verðbólgan og næsti vaxtadagur ofarlega í huga. Verða vextir lækkaðir eða ákveður peningastefnunefndin að halda þeim óbreyttum á meðan verðbólgan geisar. Stefnir íslenska hagkerfið í kyrrstöðuverðbólgu (e. stagflation) sem er heimatilbúinn vandi. Á sama tíma er útflutningur landsins að dragast saman milli ára samkvæmt nýjustu tölum Hagstofunnar.

- Auglýsing -

Í þáttinn koma góðir gestir, þeir Heiðar Guðjónsson fjárfestir og nýkjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka og Grímur Sæmundsen læknir, frumkvöðull og forstjóri Bláa lónsins. Það er því af nógu að taka í Hluthafaspjallinu að þessu sinni.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift