Hluthafaspjallið | Leikmannamarkaður forstjóranna og bandaríska efnahagsvélin

Hluthafaspjallið

Ritstjórarnir, þeir Jón G. Hauksson og Sigurður Már Jónsson, heilsa nýju ári með kraftmikilli hluthafaumræðu. Sem endranær fara þeir yfir það hvað sé að gerast í íslensku kauphöllinni og breytingar á leikmannamarkaði forstjóranna. Nýtt fólk í brúnni hjá Bláa lóninu og Alvotech fær nýja merkingu í umfjöllun þeirra félaga. Einnig ræða þeir Amaroch og hækkun á verði félaga með Grænlandstengingar.

- Auglýsing -

Góðir gestir komu í þáttinn að venju en fyrstur kom Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur til að ræða við um bandarísku efnahagsvélina og hvers hlutabréfaeigendur í Bandaríkjunum geta vænst. Þorsteinn fór yfir helstu hagtölur og hvaða áhrif efnahagsstefna Donalds Trumps hefur. Miklar fjárfestingar hafa verið boðaðar í Bandaríkjunum um leið og Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að hann vilji hækka útgjöld landsins til varnarmála um helming á næsta ári og leggur til að þau nemi alls 1,5 billjónum bandaríkjadala. Myndi það vera hækkun um 50% eða úr einni billjón bandaríkjadala. Þorsteinn útskýrir hvernig hann ætlar að fjármagna það.

Að lokum kemur Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur sem er genginn til liðs við IFS/Reitun í spjall við ritstjórana en hann er með athyglisverða greiningu á nýhöfnu ári. Konráð rýnir í kristalskúluna og segir okkur hve nýsamþykkt fjárlög eru raunhæf.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift