Hluthafaspjallið | Sjávarútvegsdagurinn í skugga hækkunar veiðigjalda

Hluthafaspjallið

Hluthafaspjallið brá sér á Sjávarútvegsdaginn í vikunni og þar var fróðlegt að fara yfir stöðuna eins og hún birtist í erindum framsögumanna og ekki síður í spjalli meðal fundarmanna. Það er merkilegt að lesa í tölurnar eins og þær birtast í einstökum gagnagrunnum Deloitte sem sýna að áhrifin af hækkun veiðigjalda og kolefnisgjalda verði töluverð á afkomu sjávarútvegsfyrirtækjanna og að hagnaður eftir breytingarnar muni minnka umtalsvert. Ritstjórarnir Sigurður Már Jónsson og Jón G. Hauksson taka stöðuna á sjávarútveginum en stjórnvöld hafa ekki enn birt veiðigjöld fyrir árið 2026, eftir umdeilda lagabreytingu sem samþykkt var í sumar, en þau þarf að birta fyrir 1. desember næstkomandi. Því má segja að stjórnendur og fjárfestar séu í óvissu.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift

- Auglýsing -