Hluthafaspjallið
Sigurður Már Jónsson rýnir í efnahagslífið og Kauphöllina með aðstoð Snorra Jakobssonar, hagfræðings og eiganda Jakobsson Capital. Kólgubakkar hlaðast nú upp í hagkerfinu og Snorri rifjar upp að hann hafi verið svartsýn síðasta haust en því miður sé það að raungerast og jafnvel svartsýnni mynd en séð var fyrir með verðbólguna fasta í 5,2% og atvinnuleysi að nálgast 8%. Kreppuverðbólga, eða stöðnunarverðbólga (e. stagflation), lýsir sér í því að atvinnuleysi eykst á sama tíma og verðbólga er mikil. Þannig verður ástandinu lýst núna. Hvernig mun ríkisstjórnin bregðast við? Hún er með lagabreytingar í pípunum sem munu gera illt verra, svo sem vísitölubindingu örorkugreiðslna. Snorri telur að krónan muni gefa eftir og langt sé í næstu vaxtalækkanir.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift
