Hluthafaspjallið | Tímamótaþáttur með harðorðum og fjörugum umræðum

Hluthafaspjallið

Það er tímamótaþáttur hjá þeim Jóni G. Haukssyni og Sigurði Má Jónssyni í Hluthafaspjalli ristjóranna í dag; fimmtugasti þátturinn. Þeir félagar láta gamminn geisa og eru umræður þeirra ansi fjörugar og harðorðar um hin ýmsu málefni. Þær ræða hlutabréfamarkaðinn; stórhækkun bréfa í Íslandsbanka og hvort ríkið hafi tapað stórfé á sölunni í bankanum sl. vor, eða um 25 milljörðum? Þeir ræða RÚV, Sýn og yfirþyrmandi þátttöku ríkisins á fjölmiðlamarkaði; tap Sýnar á meðan Síminn og Nova hagnast. Stórglæsilegt hlutafjárútboð Dranga á dögunum ber á góma sem og góður árangur Festar og Haga á árinu sem hefur skilað sér í hækkuðu gengi bréfa í félögunum núna í jólavertíðinni.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift

- Auglýsing -