S02E36 | Halla og World Economic Forum

Spjallið með Frosta Logasyni

Halla Tómasdóttir, frumkvöðull og forsetaframbjóðandi, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hún segist telja ákveðins miskilnings gæta varðandi tengsl hennar við World Economic Forum, hún segist ekki vera meðlimur í þessum samtökum, fyrirtæki hennar B-Team sé það ekki heldur og að hún hafi aldrei tekið þátt í aðalráðstefnu þeirra. Hún hafi hinsvegar sem fulltrúi frjálsra félagasamtaka þrisvar sinnum sótt hliðarviðburði ráðstefnunnar sem á sér stað árlega í Davos. Halla gefur ekki mikið fyrir samsæriskenningar um heimsyfirráð World Econoimic Forum. Hún segist telja að upprunalegt markmið WEF sem hafi verið að skapa samtal alþjóðlegra stórfyrirtækja við stjórnvöld viðsvegar um heiminn hafi verið gott. Hún telji hinsvegar ráðstefnuna vera orðna of mikla elítu samkomu og að nálgunin í Davos sé orðin löngu úreld.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift

- Auglýsing -