Spjallið með Frosta Logasyni | Ástandið hvergi eins slæmt og á Íslandi

Spjallið með Frosta Logasyni

Julie Bindel er rithöfundur, þáttastjórnadi og blaðamaður fyrir breska dagblaðið The Telegraph. Hún er róttækur femínisti sem hefur í áratugi verið þekkt fyrir baráttu sína gegn kvenfyrirlitningu og kynbundnu ofbeldi. Hún hefur komið nokkrum sinnum til Íslands og vann hér á árum áður með Stígamótum þegar samtökin börðust gegn rekstri nektardansstaða í Reykjavík. Nú er hún komin til landsins til að vinna rannsóknargrein um stöðu kvenréttinda á Íslandi en segir að Stígamót vilji núna ekkert með sig hafa, og að þær hafi í raun neitað að hitta hana í þessari heimsókn. Julie segir það vera vegna skoðanna sinna á transmálefnum sem hún hefur á undanförnum árum gagnrýnt mjög harðlega þar sem hún trúir því að transhugmyndafræðin hafi gert lítið annað en að grafa undan femíniskri baráttu.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift

- Auglýsing -