Spjallið með Frosta Logasyni | Endurgreiðslan grundvöllur blómlegs kvikmyndaiðnaðar

Spjallið með Frosta Logasyni

Leifur Dagfinnsson, framkvæmdastjóri og einn stofnenda kvikmyndafyrirtækisins Truenorth, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Vöxtur Truenorth hefur verið mikill á undanförnu árum og veltir fyrirtækið orðið mörgum milljörðum ár hvert. Kvikmyndaverkefni á borð við Star Wars, Batman Begins, Flags of Our Fathers, Die Another Day, Lara Croft: Tomb Raider, Prometheus, Oblivion, Noah, The Secret Life of Walter Mitty og True Detective hafa að sögn Leifs ekki bara lift íslenskum kvikmyndaiðnaði upp á hærra plan heldur hafa verkefnin einnig skapað þjóðarbúinu gríðarlegar útflutningstekjur sem svo margfaldist þegar þær komist í virkni í íslenska hagkerfinu. Leifur varar þess vegna sterklega við hugmyndum um skerðingar á endurgreiðslum til kvikmyndagerðar sem hafa verið boðaðar og segir það muna verða á kostnað íslenskra hagsmuna og tækifæra.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift

- Auglýsing -