Spjallið með Frosta Logasyni | Fréttir um heilsuspillandi rúmdýnur þaggaðar niður

Spjallið með Frosta Logasyni

Vilmundur Möller Sigurðsson rafeindavirkjameistari er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Vilmundur stofnaði á sínum tíma facebook hópinn “Er rúmið mitt að drepa mig” en þar inni eru um 12 þúsund Íslendingar sem deila reynslusögum af skaðlegum áhrifum plastefna í svokölluðum heilsudýnum. Vilmundur segir einnig komnar fram fjölmargar erlendar rannsóknir sem sýna hið sama. Þegar facebook hópurinn fór fyrst á flug fór Vilmundur bæði í viðtal hjá sjónvarpsfréttastofu RÚV og eins kvöldfréttum Stöðvar 2. Þrátt fyrir að viðtölin hafi verið tekin upp, og fréttamenn hafi virst áhugasamir, hefur Vilmundur aldrei fengið neinar tilhlýðilegar skýringar á hvers vegna þau voru aldrei birt.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift

 

- Auglýsing -