Spjallið með Frosta Logasyni
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, fyrrverandi bankamaður, var með réttarstöðu sakbornings í heilan áratug á meðan sérstakur saksóknari rannsakaði hann á eftirárum hrunsins. Hann fékk að lokum skilorðsbundin dóm fyrir hlutdeild að umboðssvikum í hinu svonefnda Stím-máli, 10 árum frá húsleit og handtökum. Hann hefur skrifað ötullega frá hruni um starfsaðferðir og kúltúr embættis sérstaks saksóknara og málar þar ekki fagra mynd. Nýlegt mál um gagnaleka frá embættinu veitir innsýn í hvernig umgengni embættisins við lög og mannréttindi voru á skjön við reglur réttarríkisns. Hvernig embættið rannsakaði öll mál til sektar og beitti til þess óvönduðum meðulum.
Þorvaldur Lúðvík hefur alla tíð haldið fram sakleysi sínu en nú hillir undir 15 ára afmæli málavafstur vegna þessa. Mannréttindadómstóll Evrópu er með mál hans til meðferðar og er niðurstöðu að vænta á næstunni. Þorvaldur segir sögu sína hér í þessu áhrifaríka viðtali.
Þorvaldur Lúðvík rekur hvernig honum varð kunnugt um réttarstöðu sína sem grunaðs manns í Kaupþingsmáli frá ritstjóra Kastljóss, Sigmari Guðmundssyni, sem vissi allt um réttarstöðu manna og grunsemdir embættis sérstaks saksóknara. Þorvaldur Lúðvík hafði ekki fengið neinar upplýsingar þar að lútandi frá embættinu og gat því engu svarað, enda fullkomlega án vitneskju. Þorvaldur segir augljóst að Kastljós hafi verið með upplýsingar frá embættinu og hafi unnið fréttir í samræmi við það. Í samtali milli ritstjóra Kastljóss og Þorvaldar Lúðvíks var hann margítrekað spurður hvort hann vildi ekki tjá sig, en hann sagðist enga vitneskju hafa um réttarstöðu eða málatilbúnað og gæti því ekki tjáð sig um eitthvað sem hann hefði ekki vitneskju um. Fréttaskýring RÚV sama kvöld hafi síðan verið með nafna- og myndbirtingum af mönnum í þessu máli (sem sumir hverjir voru aldrei ákærðir) og ritstjórinn lauk fréttaskýringunni með því að segja “engan sakborning hafa viljað tjá sig”.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift