Sá sem grunaður er um hrottalegt þrefalt morð í Uppsölum er 16 ára drengur af sómalskum uppruna, að því er sænskir fjölmiðlar greina frá.
Á lista barnaverndar í mörg ár
Samkvæmt heimildum dagblaðsins Expressen höfðu barnaverndaryfirvöld haft áhyggjur af félagsskap drengsins í mörg ár, meðal annars vegna tengsla við eiturlyfjasölu og ofbeldisbrot.
Félagsþjónustan hafði fylgst með aðstæðum fjölskyldunnar í nær áratug, og faðir drengsins hefur áður setið í fangelsi fangelsis fyrir ýmis brot.
Hann hefur einnig verið grunaður um heimilisofbeldi.
Reyndi að koma syni sínum út úr aðstæðunum
Í tilraun til að bregðast við hegðun sonarins flutti móðir hans hann og systkini hans aftur til Sómalíu í fyrra, í von um að rjúfa vítahringinn.
Eftir níu mánuði sneri hann aftur til Svíþjóðar í febrúar á þessu ári og tengdist fljótlega aftur sínum fyrri félögum.
Sneri strax til fyrri iðju
Síðan þá hefur hann verið grunaður um fjölda brota, þar á meðal eiturlyfabrot, brot á vopnalögum og þjófnað.
Þrátt fyrir ákvörðun um að nauðungarvista hann á unglingaheimili tókst honum að flýja fyrir þremur vikum.
Hann var handtekinn á heimili fjölskyldunnar þar sem hann var að þvo föt sín upp úr klór, að því er fram kemur í heimildum Aftonbladet.
Alice Teodorescu Måwe, þingmaður Kristdemókrata í Evrópuþinginu, sagði á samfélagsmiðlinum X: „Við verðum að byrja að henda fleiri glæpamönnum úr landi sem ógna öryggi og frelsi heiðarlegs fólks.“
Kommenterade trippelmordet i Uppsala och behovet av att, på ren svenska, kasta ut fler kriminella som söndertrassar tryggheten och friheten för skötsamma människor i vårt land. pic.twitter.com/C1T5OzX0Br
— Alice Teodorescu Måwe (@alicemedce) April 30, 2025