431 skráður með lögheimili í tveimur verbúðum – nærri jafn margir og á allri Skagaströnd

Alls voru 431 einstaklingur skráður með lögheimili að Klettatröð 10 í Reykjanesbæ árið 2025. Heimilisfangið samanstendur af tveimur byggingum sem báðar eru skráðar sem verbúðir.

Til samanburðar voru íbúar Sveitarfélagsins Skagastrandar 450 talsins í ársbyrjun 2026. Aðeins 19 fleiri bjuggu því í öllu sveitarfélaginu en voru skráðir með lögheimili að Klettatröð 10.

Auglýsing

Þetta kemur fram í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Bergþórs Ólasonar, þingmanns Miðflokksins, um fjölmennasta lögheimili landsins.

Fjölgaði um 120 á einu ári

Í svarinu kemur fram að 311 einstaklingar hafi verið skráðir með lögheimili að Klettatröð 10 árið 2024. Árið 2025 voru þeir orðnir 431.

Fjölgunin nam því 120 einstaklingum á einu ári, eða tæplega 39 prósentum.

Stofnanir voru undanskildar þegar upplýsingarnar voru teknar saman. Klettatröð 10 var fjölmennasta lögheimili landsins bæði árin 2024 og 2025.

Tvær jafnstórar verbúðir

Samkvæmt fasteignaskrá HMS eru tvær sjálfstæðar fasteignir skráðar að Klettatröð 10. Báðar eru flokkaðar sem verbúðir, byggðar árið 1992 og hvor um sig 1.335,1 fermetri.

Samanlagt eru byggingarnar því 2.670,2 fermetrar og standa á 9.656 fermetra lóð.

Fasteignanúmer bygginganna eru F2323522 og F2323523. Fasteignamat þeirra fyrir árið 2026 er samtals rúmlega 320 milljónir króna og brunabótamat tæplega 985 milljónir.

Gistiheimili með 45 til 48 herbergjum

Gistiheimilið Airport Inn hefur verið rekið að Klettatröð 10. Í fundargerð Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja frá árinu 2014 kemur fram að Hólsfjall ehf. hafi fengið starfsleyfi til að reka þar gistiheimili með 48 herbergjum.

Í fasteignaauglýsingum frá 2020 var önnur 1.335 fermetra eignin hins vegar sögð vera með 45 herbergi í útleigu. Athygli vekur að í fyrirsögn auglýsingarinnar stóð eftirfarandi:

EIGNIN SELST MEÐ LEIGUSAMNINGI TIL 100 MÁNAÐA – GÓÐAR LEIGUTEKJUR – ARÐBÆR FJÁRFESTING – STERKUR LEIGUTAKI!!!!

Ekki hefur tekist að staðfesta hversu mörg herbergi eru samanlagt í byggingunum tveimur. Því er ekki hægt að reikna með vissu hversu margar lögheimilisskráningar voru að meðaltali á hvert herbergi.

Miðað við samanlagt flatarmál bygginganna voru hins vegar aðeins um 6,2 fermetrar húsnæðis á hvern skráðan einstakling. Þar eru gangar, snyrtingar og öll sameiginleg rými meðtalin.

Fleiri en í Strandabyggð

Í Sveitarfélaginu Skagaströnd bjuggu 450 manns 1. janúar 2026. Fjöldinn að Klettatröð 10 var því aðeins um fjórum prósentum lægri en íbúafjöldi alls sveitarfélagsins.

Skráningarnar voru jafnframt fleiri en íbúar ýmissa íslenskra sveitarfélaga. Til dæmis voru 422 íbúar í Strandabyggð samkvæmt mannfjöldatölum fyrir árið 2026.

Talan er einnig sláandi í samanburði við stærstu fjölbýlishús landsins. Æsufell 2–6 í Fellahverfi var reist sem stærsta fjölbýlishús Íslands og telur 123 íbúðir. Fjöldinn að Klettatröð 10 samsvarar 3,5 einstaklingum fyrir hverja íbúð í þeirri risablokk.

Ekki upplýsingar um raunverulega búsetu

Tölurnar í svari ráðherra sýna lögheimilisskráningar en staðfesta ekki að allir einstaklingarnir hafi dvalið í byggingunum samtímis.

Í svarinu kemur heldur ekki fram hvert ríkisfang þeirra var, hversu margir höfðu raunverulega búsetu á staðnum eða hvort Þjóðskrá hefði kannað réttmæti skráninganna.

Ráðherra tók fram að einstaklingar utan EES- og EFTA-svæðisins mættu almennt ekki skrá lögheimili á Íslandi nema þeir hefðu gilt dvalarleyfi. Skráning gæti þó haldist óbreytt á meðan umsókn um endurnýjun dvalarleyfis væri til meðferðar.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing