7.000 krónur á mælinum við BSÍ áður en farþegi sest upp í – Taxý Hönter böstar fleiri leigubílstjóra

Friðrik Einarsson, betur þekktur sem Taxý Hönter, hefur birt myndband úr leigubílaröðinni við BSÍ. Á upptökunni er myndavélinni beint inn um glugga leigubíls sem bíður eftir farþega. Enginn er í bílnum með bílstjóranum, en gjaldmælirinn sýnir fyrst 6.950 krónur og hækkar síðan í 7.000 krónur.

Í færslunni segir Friðrik að bílstjórinn sé eigandi Amen Taxi.

Auglýsing

Annað atvik á Ingólfstorgi

Friðrik birtir einnig færslu um aðra upptöku, sem kollegi hans tók á Ingólfstorgi um tveimur vikum fyrr. Þar nefnir hann Saint Paul Edeh og segir startgjaldið í bíl hans hafa verið 3.800 krónur. Það er ekki myndbandið frá BSÍ.

Hefur fylgst með gjaldtöku leigubíla árum saman

Friðrik starfaði áður sem leigubílstjóri og hefur um árabil birt myndbönd af því sem hann telur vera ofrukkun og brot á reglum á leigubílamarkaði. Hann hefur meðal annars lýst því hvernig hann mætti að kvöldi til við Keflavíkurflugvöll, fylgdist með leigubílaröðinni og birti upptökur sínar á samfélagsmiðlum. Í maí 2025 skilaði hann inn leigubílaleyfi sínu til að einbeita sér að þessari baráttu en er nú snúinn aftur á markaðinn.

Nútíminn í vettvangsferð með Taxý Hönter á Keflavíkurflugvöll – Ofrukkanir og svindl

Í fyrra birti hann myndband af deilu Saint Paul Edeh og tveggja ferðakvenna við Bláa lónið um fargjald; Edeh mótmælti frásögn Friðriks þegar Vísir ræddi við hann. Friðrik hefur einnig gagnrýnt eftirlit með leigubílum við Keflavíkurflugvöll í útvarpsviðtölum. Eftir slíka umræðu greindi Isavia frá því að um hundrað bílstjórum hefði verið vísað tímabundið eða til lengri tíma frá leigubílasvæði flugstöðvarinnar vegna brota á reglum.

„Dýrlingurinn“ sviptur leigubílaleyfinu – segist ekki hafa verið látinn vita

Friðrik ræddi málið enn á ný í Reykjavík síðdegis á föstudag og sagði nýju leigubílalögin engu hafa breytt.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing