Aðstandandi gagnrýnir hjúkrunarforstjóra harðlega eftir ummæli í útvarpsviðtali – Segir svör Hrafnistu full af hroka og yfirlæti

Davíð Bergmann, aðstandandi aldraðrar konu á biðplássi, gagnrýnir Hrafnistu og forstjóra hennar harðlega í pistli sem hann birti nýlega.

Hann segir samskipti brostin og virðingu enga, að þjónusta hafi mistekist ítrekað og að ummæli forstjórans í útvarpsviðtali séu bæði niðurlægjandi og móðgandi fyrir aðstandendur.

Segir viðtalið á Bylgjunni hafa verið hrokafullt

Auglýsing

Tilefni pistils Davíðs er viðtal við Maríu Fjólu Harðardóttur, hjúkrunarforstjóra Hrafnistu, á Bylgjunni.

Þar segir hann að yfirlæti og framkoma hennar hafi valdið sér ógleði.

„Hún dirfðist að halda því fram að við, sem berjumst fyrir reisn okkar nánustu, værum að bera alls konar lygum upp á starfsemi hjúkrunarheimila,“ skrifar Davíð og bætir við að ummælin hafi verið sér sérstaklega sár í ljósi eigin reynslu.

Móðir hans ekki fengið að fara í bað í þrjár vikur

Í pistlinum lýsir Davíð því að móðir hans, 84 ára, hafi ekki fengið bað í þrjár vikur á biðplássi.

Hann segir það hafa verið staðfest eftir að bróðir hans fór í málið og að um hafi verið að ræða mistök sem stofnunin hafi í fyrstu neitað.

Davíð segir þetta ekki í fyrsta sinn sem fjölskyldan fái rangar upplýsingar.

Hann bendir á að annað mál, þar sem móðir hans hélt því fram að þjónusta hefði brugðist, hafi fyrst verið tekið afdráttarlaust af borðinu af starfsmönnum en seinna komið í ljós að hún hafði rétt fyrir sér.

Segir móður sína hafa verið niðurlægða í ummönnun

Davíð lýsir einnig atviki þar sem móðir hans hafi verið þvegin í klofinu af karlkyns starfsmanni af erlendum uppruna, þvert gegn vilja hennar.

Hann segir það hafa verið niðurlægjandi fyrir hana og að virðing hafi ekki verið sýnd.

Það er ekki það að innflytjendur vinni þessa vinnu, heldur að henni hafi ekki verið sýnd sú virðing að kona tæki þetta að sér,“ segir hann og bendir á að samskiptin við heimilið hafi farið að grotna niður þegar þeim var ekki sagt satt strax í byrjun.

Kallar kerfið rotnað og ábyrgð stjórnenda algera

Davíð segir málaflokkinn í rúst og telur að stjórnendur Hrafnistu ráði ekki við verkefnið.

Hann gagnrýnir það sem hann kallar rótgróinn hroka gagnvart fólki sem sé nú komið á síðustu metra lífsins og þurfi að treysta á þjónustu sem hann segir of oft bregðast.

„Þetta fólk okkar verðskuldar betri meðferð,“ skrifar hann og bætir við að það eigi skilið virðingu, ekki hroka.

Vill að móðir sín fái framtíðarvistun annars staðar

Davíð segir fjölskylduna vona að móðir þeirra fái framtíðarvistun á heimili í heimabæ sínum, þar sem hún fái að njóta síðustu ævikvöldanna í friði og með reisn.

Hann segir það útilokað að treysta Hrafnistu fyrir þeirri umönnun.

„Eitt er víst: Það verður aldrei á Hrafnistu með svona stjórnendur.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing