Billie Eilish hefur sætt gagnrýni eftir pólitísk ummæli sem hún lét falla við afhendingu Grammy verðlaunanna, þar sem hún sagði að engin manneskja væri ólögleg á stolnu landi. Fulltrúar Tongva ættbálksins í Kaliforníu hafa stigið fram í kjölfarið og bent á að glæsibýli söngkonunnar standi á landi sem þeir telja vera sitt ættland.
Ummælin á Grammy verðlaunahátíðinni
Í þakkarræðu sinni á Grammy verðlaunahátíðinni hátíðinni ákvað Eilish að taka pólitískan vinkil á ræðu sína og gagnrýndi aðgerðir gegn ólöglegum innflytjendum í Bandaríkjunum. Hún vísaði til þess að saga landsins byggðist á landnámi og yfirtöku á landi frumbyggja og sagði að því samhengi væri rangt að tala um ólöglegt fólk.
Ábending frá Tongva ættbálknum
Fulltrúar Tongva ættbálksins tóku undir að mikilvægt væri að minna á söguna og sögðust meta það þegar þekkt fólk vekur athygli á henni. Þeir bentu þó á að Eilish hefði aldrei haft samband við ættbálkinn vegna húss síns, sem er byggt á svæði sem þeir telja til síns lands á Los Angeles svæðinu.
„Eilish hefur ekki haft samband við ættbálkinn í tengslum við eign sína. Við metum það þegar opinberar persónur vekja athygli á raunverulegri sögu landsins, en vonum að almenningur skilji að stór hluti Los Angeles svæðisins er enn Tongva land,“ segir í yfirlýsingu sem haft var eftir fulltrúum ættbálksins.
Þrátt fyrir að ummæli Eilish hafi eflaust verið vel meint telja sumir að þau hafi ekki verið eins vel heppnuð og söngkonan vonaðist eftir. Bent hefur verið á að söngkonan sé talin vera mjög efnuð og hafi styrkt ýmis góðgerðarmál í gegnum tíðina, en engar upplýsingar liggi fyrir um að sá stuðningur hafi skilað sér til fólksins sem gerir tilkall til þess landsvæðis sem hún býr á.
Þótt Billie Eilish hafi eflaust eingöngu viljað benda á óréttlæti með ræðu sinni telja fulltrúar Tongva ættbálksins að hún gæti gert meira til að sýna þann stuðning í verki.