Afganskur innflytjandi fær 15 mánaða skilorðsbundinn dóm – 12 ára stúlku hópnauðgað ítrekað

Fyrsti dómurinn í einu hrottalegasta kynferðisbrotamáli síðari ára í Austurríki féll í gær í Héraðsdómi Vínarborgar.

Afganskur innflytjandi, Wais S., sem tók þátt í og skipulagði hópnauðgun á 12 ára gamalli stúlku sem gengur undir nafninu „Mia“, hlaut einungis 15 mánaða skilorðsbundinn dóm og var dæmdur til að greiða 670 pund í skaðabætur, en það eru um 115 þúsund íslenskar krónur.

Mikil reiði í samfélaginu

Auglýsing

Málið hefur vakið mikla reiði og undrun í austurrísku samfélagi og fjölmiðlum, þar sem fjallað hefur verið ítarlega um hvernig stúlkan var „send á milli“ a.m.k. 12 stráka, sem flestir voru innflytjendur.

Þeir tóku svo þátt í að nauðga henni ítrekað á milli febrúar og júní 2023, stundum margir saman og stundum einn í einu.

Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar átti misnotkunin sér stað í íbúðum, bílskúrum og öðrum stöðum í Vínarborg.

Deildu glæpnum á samfélagsmiðlum

Sumir drengjanna tóku upp myndbönd og deildu myndefni af ódæðinu á samfélagsmiðlum.

Wais S. var kærður fyrir að hafa átt í kynferðislegu sambandi við stúlkuna, þrátt fyrir að hafa vitað að hún væri undir 14 ára aldri, og einnig fyrir að hafa reynt að kúga hana með kynferðilegu myndefni eftir að hún fór í fóstureyðingu.

Í réttarsal játaði Wais að hluta til sök en hann sagðist hafa talið að kynferðissamband við 12 ára stúlku væri löglegt

Hann lýsti því einnig að hann hefði ógnað henni með kynlífsmyndböndum sem hann hafði tekið sjálfur af þeim saman.

Skilorðsbundinn dómur….

Þrátt fyrir þessar játningar, þáttöku hans í hópnauðgunum og alvarleika málsins ákvað dómurinn að veita honum aðeins skilorðsbundinn dóm.

Fjölmiðlar hafa fjallað ítarlega um hrylling málsins, þar sem Mia öskraði og æpti og grátbað þá ítrekað um að hætta á meðan brotin áttu sér stað.

Nokkrir drengjanna heldur því fram að allt hafi þetta verið með samþykki og að stúlkan hafi „látist vera eldri“.

Að sögn lögreglu voru 17 einstaklingar til rannsóknar, þar af voru 12 á aldrinum 14 til 18 ára, og brotin voru skráð sem alvarlegt kynferðisbrot og framleiðsla og dreifing kláms efnis sem sýnir börn.

Wais er sjálfur 18 ára.

Lögreglan með sannanir en dregur fæturna í málinu

Þrátt fyrir að lögreglan hafi gert húsleit og lagt hald á símagögn og myndefni hefur aðeins einn dómur fallið hingað til, og sá dómur var skilorðsbundinn.

Lögmaður fórnarlambsins, Sascha Flatz, krefst þess að fleiri ákærur verði gefnar út: „Fórnarlambið verður að finna að réttarríkið bregst við – að hún sé ekki skilin eftir ein.“

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing