Ágústa Eva segir menn hafa laumast í pottinn hjá sér – Spyr hverjir mennirnir séu

Leik- og söngkonan Ágústa Eva Erlendsdóttir leitar upplýsinga um tvo menn sem sagðir eru hafa farið inn í garð hennar í Hveragerði að næturlagi og baðað sig í heitum potti. Sömu menn virðast einnig hafa farið óboðnir inn á sundlaugarsvæðið á Hótel Örk.

Myndir sem birtar voru í Facebook hópnum Hvergerðingar sýna mennina klifra yfir girðingu við sundlaugarsvæðið. Annar þeirra sést síðar með hvítt handklæði um hálsinn.

Auglýsing

„Veit einhver hvað þeir eru að pæla?“

Ágústa Eva spurði í hópnum hvort fleiri bæjarbúar hefðu orðið varir við mennina um nóttina.

„Fékk ábendingu um að þeir hafi verið að sniglast í garðinum hjá okkur og fóru ofan í pottinn hjá mér og stalust í sund á Örkinni víst líka og víðar?“ skrifaði hún.

Hún kvaðst ekki hafa orðið vör við að neinu hefði verið stolið en sagði mennina hafa skilið eftir sig dót.

„Veit einhver hvað þeir eru að pæla eða hverjir þetta eru?“

Íbúar hvattir til að hafa augun opin

Önnur kona birti færslu í hópnum skömmu áður og spurði hvort einhver hefði tekið eftir óvenjulegum mannaferðum í kringum Hótel Örk. Henni hefði borist til eyrna að farið hefði verið inn á sundlaugarsvæðið og þar valdið usla.

Hún sagði jafnframt að svipað atvik hefði áður komið upp og hvatti fólk í nágrenninu til að hafa augun opin næstu daga. Ef einhver hefði séð bíl, fólk á ferli um nóttina eða orðið var við eitthvað sem gæti skipt máli væri rétt að koma upplýsingunum áfram.

Ekki er vitað að svo stöddu hverjir mennirnir eru, hvert erindi þeirra var eða hvort málið hefur verið tilkynnt til lögreglu.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing