Áhrifavaldurinn sem handtekinn var í tengslum við meinta, sérlega grófa hópnauðgun á Akureyri er Kleini – Fyrrum kærasta stígur fram og segir frá ofbeldi

Lögreglan á Norðurlandi eystra handtók þrjá menn vegna rannsóknar á alvarlegu kynferðisbroti sem talið er hafa átt sér stað aðfaranótt sunnudags á hóteli í miðbæ Akureyrar. Brotaþoli leitaði í kjölfarið aðhlynningar á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.

Mennirnir þrír sem grunaðir eru um nauðgun á Akureyri sagðir hafa gert myndband af brotinu – Þekktur áhrifavaldur meðal hinna handteknu

Auglýsing

DV greindi fyrst frá málinu en samkvæmt heimildum Nútímans hefur lögregla nú handtekið alla þrjá sem taldir eru tengjast málinu en tveimur verið sleppt.

Myndband sagt hafa farið í dreifingu

Heimildarmaður Nútímans segir að meint brot hafi verið tekið upp á myndband og að myndefni hafi farið í dreifingu á samfélagsmiðlum. Heimildir DV staðfesta þessa sögu.

Lögreglan á Norðurlandi eystra vildi ekki staðfesta þessar upplýsingar þegar eftir því var leitað.

Einn þeirra sem var handtekinn er þekktur íslenskur áhrifavaldur. Sá maður er Kristján Einar Sigurbjörnsson, oft kallaður Kleini.

Fyrrverandi kærasta stígur fram

Í dag steig fyrrverandi kærasta Kristjáns, einkaþjálfarinn Hafdís Björg Kristjánsdóttir, fram og sagði frá ofbeldi sem hún segist hafa orðið fyrir í sambandi þeirra.

Í færslu á Facebook segir Hafdís að henni hafi reynst erfitt að fylgjast með fréttum af málinu og að hún kenni sér að hluta um að hafa ekki stigið fyrr fram og varað aðrar konur við.

„Mér þykir ótrúlega erfitt að fylgjast með fréttum í dag og erfitt að kenna ekki sjálfri mér um að hafa ekki stigið fram og varað aðrar stelpur við ofbeldinu sem fylgir þessum manni,“ segir hún.

Hafdís segir að hún hafi ekki verið tilbúin að opna sig um áfallið opinberlega fyrr þar sem hún væri enn að vinna úr því og vildi jafnframt verja börn sín fyrir umræðunni.

Hún segir að hún hafi ítrekað leitað til lögreglu á meðan sambandið stóð yfir.

„Ég get ekki talið upp hversu oft hann hefur verið handtekinn eða hversu oft mér hefur verið hótað lífláti,“ segir hún og bætir við að hún hafi margoft hringt í lögregluna en að honum hafi oft verið sleppt daginn eftir.

Hafdís segir að lokum að hún stígi nú fram þar sem hún hafi ekki lengur samvisku til að þegja.

„Eina ástæðan fyrir því að ég stíg fram núna er sú að ég hef ekki samvisku til að þegja lengur og horfa upp á þann viðbjóð sem hann skapar.“

Dæmdur fyrir rán á Spáni

Kristján Einar var árið 2023 dæmdur á Spáni fyrir rán í Málaga. Dómurinn hljóðaði upp á þrjú ár og níu mánuði í fangelsi en var skilorðsbundinn til þriggja ára. Hann sat þó í varðhaldi í átta mánuði áður en honum var sleppt.

Samkvæmt dóminum réðust Kristján Einar og annar maður að tveimur einstaklingum síðla nætur. Í öðru tilvikinu var manninum hrint upp að vegg á meðan oddhvössum hlut var beint að kvið hans og peningum stolið af honum. Um var að ræða 40 evrur. Þá var einnig gerð tilraun til ráns gegn öðrum einstaklingi.

Fram hefur komið í umfjöllun um málið að Kristján Einar játaði sekt sína í því. Eftir að hann kom til Íslands lýsti hann atvikinu hins vegar sem „fyllerísslagsmálum“ og sagðist ekki hafa gert neitt sem réttlætti fangelsisdóm.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing