Arnar Þór Jónsson sakar fjölmiðla um að hafa „fréttir til sölu“

Arnar Þór Jónsson, formaður Lýðræðisflokksins og fyrrum forsetaframbjóðandi, birti harðorða færslu á Facebook þar sem hann gagnrýnir bæði íslenska og alþjóðlega fjölmiðla harðlega fyrir það sem hann kallar „útsölu frétta“ og áhrif erlendra afla á fjölmiðlun.

Hann vísar sérstaklega til upplýsinga frá Wikileaks sem sýna að bandarísku þróunarsamtökin USAID hafi frá árinu 2003 veitt verulegum fjármunum til fjölmiðla, blaðamanna og félagasamtaka um allan heim.

6.200 blaðamenn og 707 fréttamiðlar fengið styrki

Auglýsing

Samkvæmt færslu Arnar Þórs hafa samtals 6.200 blaðamenn og 707 fréttamiðlar hlotið styrki frá USAID síðastliðin tuttugu ár, auk 279 félagasamtaka.

Í fjárlögum Bandaríkjanna fyrir árið 2025 hafi 268 milljónum dollara verið varið sérstaklega til „sjálfstæðra fjölmiðla og frjáls upplýsingaflæðis“.

Meðal þeirra fréttaveitna sem hann nefnir að hafi fengið styrki eru Reuters (9 milljónir dollara), Politico (32 milljónir), BBC (3,2 milljónir), New York Times (2,6 milljónir), AP (500 þúsund) og Internews (404 milljónir dollara).

Arnar Þór fullyrðir að íslenskir fjölmiðlar, svo sem RÚV, mbl.is og visir.is, byggi næstum allar af erlendum fréttum sínum á þessum erlendu miðlum, sem hafi sjálfir þegið fjármuni frá stjórnvöldum í Bandaríkjunum.

Áróður í heimsfaraldri og þöggun mikilvægrar umræðu

Í færslu sinni rifjar Arnar Þór einnig upp upplýsingaflæðið í heimsfaraldrinum árið 2020.

Hann gagnrýnir sérstaklega hvernig fjölmiðlanefnd hafi á þessum tíma ráðlagt almenningi að treysta á „stóra og rótgróna“ miðla.

Hann bendir á að á sama tíma hafi íslensk heilbrigðisyfirvöld verið upptekin við að nota PCR próf á „allt sem hreyfðist“, þrátt fyrir lága dánartíðni Covid-19, sem hann segir hafa verið um 0,3% á þessum tíma.

„Þótt augljóst væri orðið strax á þessum tíma að C19 var samkvæmt þessu ekki drepsótt og ekki hættuleg ungu og heilsuhraustu fólki, var haldið áfram að berja á fólki með linnulausum hræðsluáróðri í fjölmiðlum,“ skrifar hann.

Vill stórfelldar breytingar á opinberum stuðningi við fjölmiðla

Í lok færslunnar leggur Arnar Þór fram skýrar kröfur: að Ríkisútvarpið verði tekið af fjárlögum og rekstur þess skorinn niður um 90%, og að fjölmiðlanefnd verði lögð niður með öllu.

Hann telur að þessar aðgerðir séu nauðsynlegar til að draga úr áhrifum áróðurs og endurheimta raunverulega sjálfstæða fjölmiðlun í landinu.

Færsluna í heild sinni má sjá hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing