Auglýsing sem birtist í Facebook hópnum Leiga hefur vakið mikla reiði og hávær viðbrögð.
Þar býður nafnlaus aðili upp á tvo gistimöguleika á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.
Annars vegar hjólhýsi með gistipláss fyrir sex manns á 300.000 krónur fyrir helgina og hins vegar tveggja herbergja íbúð á „besta stað“ á 650.000 krónur.
Að auki þarf að greiða allt að 250.000 krónur í tryggingu.
Aðgengi að tjaldstæði er ekki innifalið og ekki fylgja miðar í dalinn.
Fjöldi athugasemda hrannast nú undir póstinn.
Notendur lýsa verðinu sem „klikkaðri græðgi“ og kalla eftir því að fólk standi saman gegn svona þróun.
„Er þetta allt saman gert úr gulli?“ spyr einn notandi kaldhæðinn.
Annar segir: „Það þarf sem sagt að eiga 900 þúsund, plús Herjólf og miða í dalinn, bara til að fara á Þjóðhátíð? Hef aldrei séð svona græðgi.“
„Ég er að fara 13 daga til Spánar með gistingu, bílaleigubíl og öllu inniföldu og borgaði 400 þúsund fyrir tvo. Þetta er rán án hnífs,“ skrifar ein kona.
Einn bendir á að verið sé að rukka 35.000 krónur á mann fyrir nóttina í íbúð, og segir það „meira en vika á Tenerife með flugi og hóteli“.
„Rigningin er væntanlega innifalin í verðinu,“ skrifar notandi kaldhæðnislega, og annar bætir við: „Það er verið að selja ferð til Tomorrowland í Belgíu með flugi og gistingu á 350 þúsund. Þetta er rugl.“
Í lok póstsins bendir auglýsandinn á að „kúlutjöld“ með engu inniföldu séu þegar að seljast á 90–200 þúsund krónur og að megnið af þeim sé uppselt. Þetta virðist þó ekki slá á reiðina:
„Græðgin er að fara með landann,“ skrifar einn og annar hikar ekki við að kalla verðlagninguna „viðskiptasiðleysi“.
Aðrir verja auglýsinguna og benda á að markaðurinn ráði:
„Ef einhver borgar þetta, þá var verðið rétt sett. Ef ekki, þá er það hans tap,“ skrifar einn.
