Bandaríkin virða fullvalda ákvörðun Íslendinga og vilja efla samstarfið

Bandarísk stjórnvöld segjast virða fullvalda ákvörðun íslensku þjóðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslunni um hafna áframhaldandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Þau lýsa jafnframt vilja til að styrkja samstarf við Ísland á sviði öryggismála, orku, nýsköpunar, efnahags og menningar.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu bandaríska utanríkisráðuneytisins, dagsettri 30. ágúst, sem gefin er út í nafni Thomas „Tommy“ Pigott, talsmanns ráðuneytisins.

Auglýsing

Í yfirlýsingunni er vísað til þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem fram fór hér á landi 29. ágúst um hvort hefja ætti að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið og Íslandi svaraði neitandi.

„Við virðum fullvalda ákvörðun íslensku þjóðarinnar,“ segir í yfirlýsingunni.

Ísland áfram sterkur og mikilvægur bandamaður

Bandarísk stjórnvöld lýsa trausti á að Ísland muni áfram vera sterkur og mikilvægur bandamaður innan Atlantshafsbandalagsins og náinn samstarfsaðili Bandaríkjanna og Evrópu.

Þá leggja þau áherslu á vilja til að efla tengsl ríkjanna á fjölmörgum sviðum.

„Við hlökkum til að styrkja samstarf okkar við Ísland á öllum sviðum, þar á meðal í öryggismálum, orkumálum og nýsköpun, sem og efnahags- og menningartengsl, til að vinna enn frekar að sameiginlegri framtíðarsýn okkar um frið og velmegun,“ segir í yfirlýsingunni.

Ekki er tekin afstaða með eða á móti aðild Íslands að Evrópusambandinu í tilkynningunni. Áherslan er á virðingu fyrir ákvörðun íslensku þjóðarinnar og áframhaldandi náið samstarf.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing