Belfast Brennur – Eftir að hælisleitandi frá Súdan reyndi að saga höfuðið af manni bæta fjölmiðlar olíu á eldinn

Miklar óeirðir brutust út í Belfast í gærkvöldið, þriðjudagskvöld, eftir hrottalega hnífaárás sem átti sér stað í borginni kvöldið áður. Kveikt var í húsum, bílum og strætisvögnum og lögregla varð fyrir árásum þegar hundruð mótmælenda söfnuðust saman á götum borgarinnar.

Auglýsing

Óeirðirnar komu í kjölfar árásar þar sem 30 ára gamall maður, sem lögregla segir vera súdanskan hælisleitanda með ótímabundið dvalarleyfi í Bretlandi, hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps. Fórnarlambið, karlmaður á fertugsaldri sem sagður er þroskaskertur, hlaut alvarlega áverka á andliti, hálsi og baki og er enn á sjúkrahúsi.

Samkvæmt myndböndum og fréttum gengu hundruðir grímuklæddra manna um götur austurhluta Belfast þar sem þeir spörkuðu upp hurðum þar sem innflytjendur búa, hentu þeim út og brutu rúður. Þá voru einnig settar upp óformlegar eftirlitsstöðvar þar sem bílar voru stöðvaðir og athugað hvort farþegar væru örugglega Norður-Írar.

Kveikt var í fjölmörgum ökutækjum og að minnsta kosti einu íbúðarhúsi. Einnig var strætisvagn af gerðinni Glider brenndur til kaldra kola og slökkviliðsmenn sinntu fjölda útkalla um alla borg þegar myrkur féll.

Leiðtogar fordæma ofbeldið

Michelle O’Neill, forsætisráðherra Norður-Írlands, fordæmdi atburðina.

„Þetta hefur ekkert með samfélagið að gera. Þetta er hreint ofbeldi,“ sagði hún og bætti við að ekki væri hægt að réttlæta árásir á saklaust fólk.

Myndbönd vöktu mikla reiði

Myndskeið af árásinni dreifðust hratt á samfélagsmiðlum.

Viðstaddir gripu að lokum inn í og náðu að yfirbuga árásarmanninn áður en lögregla kom á vettvang. Lögreglan fann eldhúshníf á vettvangi.

Hryllingur í Belfast – „Hjálp, hann er að saga af honum hausinn!“

En ef árásin sjálf var kornið sem fyllti mælinn þá voru ummæli í fjölmiðlum neistinn sem kveikti í öllu saman, en í þættinum The Tonight Show komu saman Sinaed Gibnney úr Sósíal Demókrötum og Mary Regan, ritstjóri pólitískrar umfjöllunar hjá Irish Independent, sem er eitt stærsta dagblað landsins.

Þær sögðu hneyksli að myndbandið skyldi hafa fengið að vera í dreifingu án þess að gripið væri inn í og að í framtíðinni þyrfti að gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir að slíkt geti endurtekið sig.

Þessi ummæli fengu mikil viðbrögð og gerðu lítið til að sefa reiði almennings.

Óeirðir tengdar málinu breiddust einnig út til annarra borga í Bretlandi, þar á meðal Glasgow, London og Southampton, þar sem mótmæli voru haldin vegna innflytjendamála og árásarinnar í Belfast.

Rannsókn málsins stendur enn yfir og á hinn ákærði að mæta fyrir dóm í Belfast í dag.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing