Brynjar Karl gagnrýnir harðlega úttekt á störfum sínum og sakar skýrsluhöfund um glæpsamlega hegðun

Körfuknattleiksþjálfarinn Brynjar Karl er nýjasti gestur í hlaðvarpinu Spjallið með Frosta Logasyni.

Brynjar skrifaði í morgun harðorða færslu á Facebook þar sem hann gagnrýnir skýrslu Þóru Sigfríðar, framkvæmdastjóra Sálfræðistofu, sem unnin var fyrir Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ). Færslan fylgir viðtali sem hann átti við Frosta Logason í opinni dagskrá í gærkvöldi.

Auglýsing

Brynjar er allt annað en sáttur við skýrsluna sem hann segir að sé glæpsamlega illa unnin.

Þungar ásakanir um vanhæfi og brot á reglum

Í færslunni sakar Brynjar Þóru um að hafa misnotað nýtt embætti sitt sem samskiptastjóri ÍSÍ til að í raun gera aðför að honum og Aþenu.

Hann segir vinnubrögðin bæði léleg og einhliða að „brotavilji“ Þóru sé augljós.

Brynjar bendir einnig á að skýrslan hafi lekið til RÚV og telur augljóst að einhver aðstandenda málsins hjá ÍSÍ eða KKÍ standi þar að baki því þeir einu sem höfðu aðgang að skýrslunni hafi verið hann sjálfur, Þóra,ÍSÍ og KKÍ.

Því komi aðrir ekki til greina fyrir að hafa lekið skýrslunni.

Ætlar að fara yfir skýrsluna opinberlega

Brynjar greinir frá því að hann hyggist birta skýrsluna í heild sinni á næstu dögum og fara yfir hana lið fyrir lið á Facebook.

Hann hvetur fylgjendur sína til að fylgjast vel með og lofar „skemmtilegri“ meðferð á efni sem hann kallar „sálfræði-thriller úr Múmíndalnum.“

Gagnrýnir val á viðmælendum

Í færslunni fer Brynjar yfir þá sem Þóra byggði skýrsluna á og sakar hana um að hafa valið einungis þá sem séu honum andsnúnir.

Hann nefnir sérstaklega Collin Kerr, sem hann segir hafa verið rekinn frá Aþenu fyrir vanrækslu, og Björgvin Þorsteinsson sem þegar sé búinn að lýsa því yfir að Þóra mistúlki orð hans af ásettu ráði.

Aðrir viðmælendur séu annað hvort óvildarmenn hans eða hafi nánast enga tengingu við málið en að ekkert hafi verið rætt við þá rúmlega 30 þjálfara sem Brynjar hafi starfað með gegnum árin.

Segir hafa fengið alvarlegar frásagnir um Þóru

Brynjar segir einnig hafa fengið símtöl undanfarna daga frá fólki sem hafi orðið fyrir meintri misbeitingu valds af hálfu Þóru og samverkamanna hennar.

Hann lýsir því að sumar þessara frásagna séu svo alvarlegar að þar gæti verið um glæpsamlega háttsemi að ræða.

„To be continued“

Færslunni lýkur Brynjar á dramatískum nótum þar sem hann líkir sjálfum sér við drekann sem „rétttrúnaðar riddarar“ reyna að fella og segir að framhald megi vænta á næstu dögum.

Hér fyrir neðan má sjá viðtalið við Brynjar Karl í heild sinni sem og færslu hans á Facebook.

 

 

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing