Búið að taka ákvörðun varðandi sameiningu Háskólans á Akureyri og Bifröst

Viðræður skólanna um sameiningu hafa staðið yfir frá haustinu 2023, en samkvæmt tilkynningu rektors, Áslaugar Ásgeirsdóttur, kom í ljós að ein meginforsenda verkefnisins, að hægt yrði að sameina rekstrarform skólanna, stóðst ekki nánari skoðun.

Háskólinn á Bifröst starfar sem sjálfseignarstofnun en Háskólinn á Akureyri er opinber stofnun og engin fordæmi eru fyrir því að slíkar einingar séu sameinaðar.

Auglýsing

Háskólaráð Háskólans á Akureyri hefur því ákveðið að hætta viðræðum um mögulega sameiningu við Háskólann á Bifröst.

Ákvörðunin var tekin einróma og kynnt bæði stjórnendum Bifrastar og Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.

Samkvæmt tilkynningu sem barst frá skólanum í dag var hún byggð á vandlega ígrunduðum niðurstöðum og mati á forsendum sameiningar.

„Sá möguleiki að nýr sameinaður háskóli yrði alfarið opinber stofnun og starfsfólk hans allt opinbert starfsfólk var ekki mögulegur,“ segir í tilkynningunni.

Af þeim sökum hefði ferlið orðið bæði flókið og tímafrekt, auk þess að skapa verulega óvissu til lengri tíma.

Óvissa um rannsóknarsjóð

Önnur lykilforsenda sameiningarinnar var að hægt yrði að nýta eignasölu og framlag stjórnvalda til að koma á fót öflugum rannsóknarsjóði.

Hins vegar reyndist óvissan um mögulega stjórnunar- og aðkomumöguleika nýs skóla að slíkum sjóði of mikil, samkvæmt Háskólaráði.

Raunsæi og ábyrgð

Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri, segir í tilkynningunni að samtalið hafi verið bæði uppbyggilegt og faglegt, en að hagsmunir beggja skóla krefjist raunsæis.

„Ef við náum ekki að uppfylla það hlutverk sem okkur er ætlað er betur heima setið,“ segir hún.

Hún bætir við að Háskólinn á Akureyri hafi vaxið og styrkst á undanförnum árum og það sé metnaðarmál að byggja áfram á þeirri þróun.

„Skólinn þarf að vera samanburðar- og samkeppnishæfur við aðra skóla og það er eitt af okkar aðalmarkmiðum.“

Kröfur úr nærsamfélaginu vega þungt

Háskólaráð segir í yfirlýsingunni að markmið skólans um að efla stöðu sína á Akureyri og nágrenni sé áfram í forgangi.

Jafnframt sé ljóst að kröfur hafi komið fram um að auka vægi staðnáms og gera starfsemi skólans sýnilegri.

Þessar raddir hafi meðal annars komið frá fræðasamfélaginu, nemendum og bæjaryfirvöldum.

Samstarf í stað sameiningar

Að lokum þakkar Háskólinn á Akureyri stjórnendum, starfsfólki og nemendum Háskólans á Bifröst fyrir frábært samtal síðustu misseri.

Þrátt fyrir að sameining fari ekki fram að sinni vonast Akureyringar til að tengslin sem mynduðust í ferlinu verði grunnur að öflugu samstarfi og vináttu skólanna til framtíðar.

Fréttin birtist fyrst á Akureyri.net.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing