Maður sem var dæmdur fyrir hryðjuverk og fyrir að hafa tekið þátt í áætlunum um sprengjuárás á breska sendiráðið í Jemen, hyggst bjóða sig fram í sveitarstjórnarkosningum í Birmingham í vor. Hann segist vilja sameina fólk og berjast gegn öfgahægri öflum í borginni.
Shahid Butt var dæmdur í Jemen árið 1999 en hann var meðlimur samtaka sem ætlaði að ráðast á vestræn skotmörk, þar á meðal breska ræðismannsskrifstofu í Aden, kirkju og hótel í eigu Svisslendinga. Hann hlaut fimm ára fangelsisdóm aðild sína í að skipuleggja hryðjuverk, að leggja á ráðin um að myrða saklausa borgara og fyrir að hafa haft vopn undir höndum.
Við réttarhöldin kom fram að hópurinn hefði tengsl við breskan öfgaíslamista, Abu Hamza, sem síðar var framseldur til Bandaríkjanna og dæmdur þar í lífstíðarfangelsi fyrir hryðjuverk.
Sneri aftur til Bretlands eftir afplánun
Butt afplánaði dóminn að fullu og sneri aftur til Bretlands árið 2003. Engar opinberar upplýsingar liggja fyrir um að dómurinn hafi nokkru sinni verið felldur úr gildi.
Áður en hann var dæmdur fyrir hryðjuverk hafði Butt tengst ofbeldisfullum glæpahópum í Birmingham og setið í fangelsi vegna þess. Hann ferðaðist einnig til Bosníu, Afganistan og Kasmír á tíunda áratugnum, meðal annars til að taka þátt í vopnuðum átökum.
Umdeild ummæli og stuðningur
Framboð hans hefur vakið mikla gagnrýni, ekki síst vegna ummæla sem hann lét falla á samfélagsmiðlum síðasta haust, þar sem hann hvatti unga múslima til aukinnar hörku og öfga og sagði meðal annars að „múslimar væru ekki friðarsinnar“. Ummælin komu í tengslum við mótmæli vegna fótboltaleiks í Birmingham.
Butt nýtur stuðnings hóps sjálfstæðra frambjóðenda og tveggja umdeildra aðgerðasinna í borginni, sem báðir hafa vakið athygli fyrir öfgafulla orðræðu og pólitíska baráttu utan hefðbundinna flokka.
Í viðtölum hefur Butt sagt að hann hafi lifað „litríku lífi“ og að það veiti honum trúverðugleika í sínu samfélagi. Hann viðurkennir að hafa stundum sagt hluti í hita leiksins sem hann sjái eftir síðar, en segist ekki bera hatur til neins og hafnar ásökunum um gyðingahatur.
„Ég trúi því í einlægni að ég geti sameinað fólk og byggt brýr milli samfélaga,“ sagði hann.
Lög heimila framboðið
Samkvæmt kosningareglum í Bretlandi er aðeins hægt að útiloka fólk frá framboði ef það hefur hlotið fangelsisdóm á síðustu fimm árum fyrir kosningar. Þar sem dómur Butts er yfir tuttugu ára gamall er honum heimilt að bjóða sig fram.