„Djöfull er íslenska þjóðin orðin geðveik“

Körfuboltaþjálfarinn Brynjar Karl gagnrýnir reglur Körfuknattleikssambands Íslands (KKÍ) vægast sagt harðlega eftir að hafa fylgst með miniboltamóti um helgina. Hann vísar til reglna sem gilda fyrir yngstu iðkendurna sem fyrirskipa að varnarmaður megi ekki taka boltann af sóknarmanni sem hefur vald á boltanum.

Í reglum KKÍ um miniboltamót, sem gilda meðal annars fyrir 1.–2. bekk grunnskóla, segir að „varnarmaður má ekki taka boltann af sóknarmanni sem hefur vald á boltanum“. Sama regla gildir einnig fyrir 3.–4. bekk.

Auglýsing

Þessar reglur eru hluti af skipulagi miniboltamóta, þar sem markmiðið er sagt vera að aðlaga leikinn að aldri og þroska barna.

„Ég hélt að enginn myndi hlusta á þetta bull“

Brynjar segist hafa orðið verulega hissa þegar hann sá þetta í framkvæmd.

„Ég fór á mót um helgina í þessum aldri og mér krossbrá að sjá keyrt á þessa reglu. Ég hélt að enginn myndi hlusta á þetta bull,“ skrifar hann. Samkvæmt honum hefur þetta verið við lýði í vetur, sem varð til þess að hann tók málið upp við sína þjálfara og spurði hvort þeir ætluðu að standa hjá.

Kallar þetta þroskaþjófnað

Gagnrýni Brynjars er óvægin og hann telur regluna ekki aðeins óeðlilega heldur beinlínis skaðlega fyrir börn.

„Ég spurði hvort þeir ætluðu bara að vera ‘bystanders’ í þessum þroskaþjófnaði. Þetta er stór hættulegt fyrir börnin.“

Hann bendir á að einn af grunnþáttum boltaíþrótta sé að vinna boltann af andstæðingi og að með slíkum reglum sé verið að fjarlægja sjálft eðli leiksins.

„Síðast þegar ég vissi var það meðal annars eðli boltaíþrótta að taka boltann af andstæðingnum. Leikur er í eðli sínu átakasvæði.“

Líkir reglunni við að banna börnum að klifra í trjám

„Þetta er eins og að banna krökkum að klifra í trjám af því þau gætu dottið, í stað þess að kenna þeim hvernig á að klifra af skynsemi,“ segir hann.

Hann bætir við að verið sé að dauðhreinsa umhverfi barna af öllu mótlæti og erfiðleikum í stað þess að kenna þeim að takast á við slíkt.

Spyr hvort einhver góð ástæða sé til

Í lokin spyr Brynjar:

„Er einhver góð ástæða fyrir því að börn megi ekki taka boltann af hvort öðru á þessum aldri sem ég einfaldlega sé ekki? Ég þarf bara eina góða ástæðu. Eina.“

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing