Faðir á Íslandi missir forsjá vegna ágreinings um transhugmyndafræði

Franskur faðir á Íslandi, Alex að nafni, segir framtíð sonar síns hafa verið ráðna í dómsmáli þar sem túlkun á hugtakinu „kynami“ og sérfræðiálit frá Samtökunum ’78 hafi vegið þyngra en læknisfræðilegar áhyggjur, sjúkraskrár og flókið taugaþroskamynstur barnsins.

Samkvæmt honum hefur Íslensk móðir drengsins viljað skilgreina drenginn sem stúlku en Alex hefur viljað fara varlega í allt slíkt.

Auglýsing

Í kjölfar dóms sem kvað á um forsjá, umgengni og heimildir til ákvarðana um málefni barnsins hefur Alex blásið til fjáröflunar á GoFundMe til að standa straum af áfrýjunarkostnaði. Hann segir sig standa í baráttu fyrir barni sem hann telur fyrst og fremst vera veikt og viðkvæmt barn, sem nýlega var greint með ódæmigerða einhverfu og ADHD, en ekki barn sem eigi að vera dregið inn í óafturkræfar ákvarðanir um kynvitund.

Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að sameiginlegt forræði væri ekki lengur fært vegna þess að foreldrarnir gætu ekki unnið saman, sérstaklega í málum sem tengjast kynvitund, sem hefði valdið viðvarandi ágreiningi og vanlíðan hjá barninu. Faðirinn var talinn hæfur í uppeldi, en tregur til að staðfesta kynvitund barnsins, sem hefði átt þátt í að tefla sambandi þeirra í hættu.

Veltu því fyrir sér hvort móðirin væri á undan barninu í „ferlinu“

Fram kemur á GoFundMe síðu Alex að móðir barnsins hafi fengið ráðgjöf frá Samtökunum ’78 og að í samtölum hafi verið velt upp þeirri spurningu hvort móðir væri mögulega á undan barninu í ferlinu. Slíkt er skráð sem áhyggjuefni og tekið fram að foreldrar séu ósammála um aðferðir, að skilnaður þeirra hafi verið erfiður og að nauðsynlegt sé að ná betur utan um fjölskylduna í heild.

„Kynami“ sett í miðju mats og ráðgjafar

Í umsögn ráðgjafaþjónustu Samtakanna ’78 er sagt að barnið sýni töluverð einkenni „kynama“, hugtaks sem lýsir vanlíðan sem trans-fólk geti upplifað vegna ósamræmis milli kynvitundar og líkamlegrar eða félagslegrar stöðu.

Þar kemur fram að slík vanlíðan geti verið bæði líkamleg og félagsleg og að börn sem fái ekki stuðning til að tjá upplifun sína geti sýnt hegðunarvanda og jafnvel ofbeldishegðun. Það er mat ráðgjafans að ef barnið fái ekki stuðning til að tjá sig eins og það upplifi sig núna geti það leitt til alvarlegs tilfinninga- og hegðunarvanda.

Taugaþroskagreiningar og flókin staða barnsins

Einnig er því haldið fram að barnið hafi nýlega lokið greiningarferli hjá Geðheilsumiðstöð barna, þar sem niðurstaðan var ódæmigerð einhverfa og ADHD. Ofan á það leggist mikið álag, einkum vegna umræðu um kynvitund barnsins.

Staða barnsins í skóla er lýst sem mjög erfiðri. Barnið þurfi fylgd í öllum kennslustundum og hafi oft sýnt nemendum og starfsfólki ógnandi hegðun. Samvinna milli foreldra er sögð lítil sem engin.

Fram kemur að barnið vilji láta ávarpa sig með tilteknu nafni og hafi sagt kennara að það vilji stundum vera stelpa og stundum strákur. Í matsgerð er dregin sú ályktun að tilfinningavandi barnsins sé mikill, félagsleg staða þess veik og að miklar áskoranir séu framundan.

Uppeldisaðstæður metnar góðar hjá báðum foreldrum

Samkvæmt Alex kemur fram að uppeldisaðstæður hjá báðum foreldrum séu metnar góðar. Þótt fjárhagsstaða föðurins sé lakari en móðurinnar séu engar vísbendingar um að barnið skorti nokkuð hjá honum. Báðir foreldrar hafi getu til að setja barninu skýr mörk.

Dómur um umgengni og heimild til erlendra dvala

Samkvæmt niðurstöðu dómsins er kveðið á um nánar tilgreinda umgengni, meðal annars um páskaleyfi og sumarleyfi, þar sem barnið dvelur samfleytt hjá föður í fjórar vikur yfir sumarið. Komi foreldrar sér ekki saman um tímasetningar gilda forgangsreglur til skiptis milli ára.

Í dómnum er jafnframt kveðið á um að föður er heimilt að ákveða einhliða að öll framangreind umgengni hans við barnið fari fram erlendis. Málskostnaður fellur niður og áfrýjun frestar ekki réttaráhrifum dómsins.

Faðirinn safnar fyrir áfrýjun og segir barnið í hættu

Faðirinn segir dóminn byggðan á túlkun á „kynama“ sem hann hafni. Hann telur að horft hafi verið fram hjá alvarlegum læknisfræðilegum spurningum, flóknum taugaþroskavanda og skráðum áhyggjum í sjúkraskrám. Með fjáröflun á GoFundMe hyggst hann reyna að fá niðurstöðuna endurskoðaða.

„Ég er ekki að berjast gegn barni mínu,“ hefur hann sagt í sínum eigin skrifum. „Ég er að berjast fyrir því.“

Hér er söfnun föðursins á GoFundMe:

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing