Dósent varar við því að setja hlaðvörp undir fjölmiðlalög – Segir slíkt veikja íslenska umræðu

Kolbeinn H. Stefánsson, dósent í félagsfræði við Háskóla Íslands, varar við því að setja hlaðvarpið Ein Pæling eða önnur sambærileg hlaðvörp undir fjölmiðlalög.

Umræðan kemur í kjölfar þess að Þórarinn segir að Fjölmiðlanefnd hafi reynt að þrýsta á hann að skrá hlaðvarpið sem fjölmiðil.

Auglýsing

Í færslu á samfélagsmiðlum segir hann að hugmyndir um að ætla að hafa eftirlit með hlaðvörpum á sama hátt og hefðbundnum fjölmiðlum séu „létt geggjuð“.

Kolbeinn útskýrir að lög um fjölmiðla eigi við um miðlun sem lúti ritstjórn.

Hann bendir á að hlaðvarpsstjórnandinn Þórarinn, sem stýrir Einni Pælingu, sé í raun einyrki sem standi fyrir samtölum og deili eigin skoðunum án þess að gefa sig út fyrir hlutlausa upplýsingamiðlun.

„Hann er ekki með ritstjórnarstefnu, sem meikar bara sens að hafa ef maður er með fólk á launum til að framfylgja henni,“ bætir dósentinn við.

Segir aðrar veitur mögulega falla undir fjölmiðlaregnhlífina

Hann segir mögulegt að stærri hlaðvarpsvettvangar, á borð við Pardus eða Brotkast, gætu í einhverjum tilvikum fallið undir skilgreiningu fjölmiðils.

Þó telur hann það óheppilegt og jafnvel hættulegt fyrir íslenskt hlaðvarpsumhverfi.

„Það myndi þrýsta íslenskum podkösturum á erlend platform sem íslensk búrókrásía ætti erfiðara með að ná tökum á eða hreinlega drepa íslensku hlaðvarpsflóruna,“ skrifar hann.

Bregðast seint og illa við

Kolbeinn segir að ný tækni hafi skapað nýja farvegi fyrir miðlun sem núverandi regluverk sé einfaldlega ekki hannað fyrir.

Í stað þess að reyna að troða podköstum inn í gamalt form sé „mun skynsamlegra að endurskoða regluverkið í ljósi breyttra aðstæðna“.

Hann telur að umræðan um að setja Eina Pælingu undir fjölmiðlalög sýni að stjórnvöld séu að bregðast of seint og með röngum verkfærum við tækniþróun, og hvetur til þess að kerfið verði lagað án þess að kæfa frjálsa umræðu.

Blaðamaðurinn Jakob Bjarnar tekur undir með Kolbeini og segir:

„Þetta er snargalið. Hér erum við með opinbera nefnd, sem fengið hefur refsiheimildir og hún er ekki með grundvallarskilgreiningar á hreinu?! Hvernig er hægt að fá það út að Þórarinn sé fjölmiðill? Samkvæmt eigin reglum kemur enginn slíkur til að mynda til álita við að þiggja fjölmiðlastyrk sem þessi sama nefnd hefur umsjá með nema þar starfi í.þ.m. þrír. Þessi nefnd er augljóslega til óþurftar.“

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing