„Ef ég væri Íslendingur myndi ég kjósa nei“ – Fyrrverandi forseti EFTA dómstólsins skýr varðandi aðild Íslands að ESB

Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins og einn helsti sérfræðingur Evrópu í EES-rétti, varar Íslendinga við því að líta á þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst sem saklausa tilraun til að „sjá hvað sé í boði“.

Í viðtali við Frosta Logason í Spjallinu segir Baudenbacher að jákvæð niðurstaða myndi koma öllu pólitísku og stofnanalegu kerfi Evrópusambandsins af stað og skapa öflugan meðbyr í átt að aðild. Þótt jáið yrði ekki lagalega óafturkræft telur hann mun erfiðara fyrir Íslendinga að hafna aðildarsamningi síðar.

Auglýsing

„Ef ég væri Íslendingur og hefði kosningarétt myndi ég kjósa nei 29. ágúst,“ segir Baudenbacher.

„Fyrra jáið er úrslitaatkvæðið“

Stjórnvöld hafa lagt áherslu á að kosningin snúist aðeins um hvort halda eigi aðildarviðræðum áfram. Endanleg ákvörðun um inngöngu yrði tekin síðar þegar samningsniðurstaða lægi fyrir.

Baudenbacher hafnar því ekki að þessu megi halda fram í þröngum lagalegum skilningi. Pólitískt sé málið hins vegar allt annars eðlis.

„Ef niðurstaðan 29. ágúst verður jákvæð fyrir ríkisstjórnina mun allt ferlið öðlast meðbyr og það verður mun erfiðara að hafna því í lokin,“ segir hann.

Hann notar hugtakið „path dependence“, eða brautarfestu, til að lýsa því sem myndi gerast. Eftir jákvætt atkvæði myndu leiðtogar ESB, embættismenn, fræðimenn og aðrir talsmenn aðildar leggja áherslu á að Ísland stæði frammi fyrir einstöku tækifæri sem ekki mætti kasta frá sér.

„Þá yrði sagt að enginn annar kostur væri í boði, að þetta væri einstakt tækifæri og að með því að hafna því væru Íslendingar að móðga Evrópusambandið, sem hefði opnað faðminn fyrir þeim.“

Hann tekur þó skýrt fram að jáið væri ekki óafturkræft.

„Óafturkræft? Nei, það væri of langt gengið. En það myndi styrkja meðbyrinn, og það virðist líka vera tilgangurinn.“

Sjálfstæð EFTA-stoð sé einstakt verðmæti

Baudenbacher segir umræðuna oft snúast um að Ísland innleiði löggjöf ESB í gegnum EES-samninginn án þess að hafa atkvæðisrétt innan stofnana sambandsins. Hann viðurkennir að þar sé um raunverulegan lýðræðishalla að ræða, en segir að með inngöngu í ESB myndi Ísland aðeins skipta honum út fyrir annars konar lýðræðishalla.

Mikilvægasta sérstaða EES-samningsins sé tveggja stoða kerfið. ESB-ríkin heyri undir framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og Evrópudómstólinn, en EFTA-ríkin hafi sína eigin eftirlitsstofnun, ESA, og sinn eigin dómstól.

„Evrópudómstóllinn getur ekki ógilt dóma EFTA-dómstólsins,“ segir Baudenbacher og bendir á að Ísland eigi einn af þremur dómurum EFTA-dómstólsins. Innan Evrópudómstólsins yrði íslenski dómarinn einn af 27.

Sama eigi við um vægi Íslands innan ESA samanborið við framkvæmdastjórn ESB. Að auki standi Ísland utan sameiginlegrar stefnu sambandsins í sjávarútvegi, landbúnaði, gjaldmiðilsmálum, utanríkisviðskiptum og utanríkismálum.

„Það er gríðarlegt fullveldislegt forskot.“

Framkvæmdastjórnin vildi að Ísland tapaði Icesave

Icesave-málið skipar stóran sess í viðtalinu. Baudenbacher var forseti EFTA-dómstólsins þegar dómurinn féll Íslandi í vil árið 2013.

Hann segir engan geta fullyrt hvernig Evrópudómstóllinn hefði dæmt málið, en bendir á að framkvæmdastjórn ESB hafi ótvírætt viljað að Ísland tapaði.

Framkvæmdastjórnin hafi ekki aðeins skilað inn sjónarmiðum heldur óskað eftir formlegri íhlutun í málið. Baudenbacher segir það hafa verið í fyrsta skipti sem framkvæmdastjórnin fór fram á slíka stöðu í máli fyrir EFTA-dómstólnum.

„Framkvæmdastjórnin gerði alveg skýrt að henni var alvara. Hún vildi að ESA ynni málið og að Ísland tapaði.“

Á Íslandi voru á þeim tíma uppi alvarlegar áhyggjur af því að tap í málinu gæti leitt til ríkisgjaldþrots. Baudenbacher segir dómstól af þessari stærðargráðu þurfa að horfa ekki aðeins til þröngra afleiðinga dóms heldur einnig til áhrifa hans á efnahag heillar þjóðar.

Dómurinn hafi meðal annars byggst á því að koma í veg fyrir svokallaðan siðferðisvanda, eða „moral hazard“. Ef ríki ábyrgðist sjálfkrafa skuldbindingar einkabanka gæti það hvatt bankana til óábyrgrar áhættutöku, þar sem þeir bæru ekki áhættuna sjálfir.

„Þarna var lítill dómstóll sem gat staðið gegn,“ segir Baudenbacher.

Hann tekur þó fram að hann hafi ekki sjálfur orðið fyrir óeðlilegum pólitískum þrýstingi. Íhlutun framkvæmdastjórnarinnar hafi verið lögmæt og enginn hafi reynt að hafa beint samband við hann vegna niðurstöðunnar.

Segir geopólitísku rökin vera nýtt hálmstrá

Baudenbacher er einnig gagnrýninn á þá röksemd að óvissa um Bandaríkin, yfirlýsingar Donalds Trump um Grænland og breytt heimsmynd kalli á inngöngu Íslands í ESB.

Hann segir athyglisvert að þessi rök hafi ekki verið fyrir hendi þegar Ísland sótti síðast um aðild.

„Svo virðist næstum sem þeir sem vilja aðild séu ánægðir með að hafa loksins fengið þessa svokölluðu röksemd. Þeir eru að grípa í hálmstrá.“

Evrópusambandið sé ekki hernaðarbandalag og geti ekki veitt Grænlandi raunverulega hernaðarvernd. Sambandið sé sjálft enn háð Bandaríkjunum í öryggismálum.

Baudenbacher telur að tímabundið stjórnmálaástand í Washington eigi ekki að ráða varanlegri stjórnskipulegri ákvörðun Íslands. Sameiginlegur menningar- og hugmyndaheimur Evrópu og Bandaríkjanna hafi þróast í meira en tvær aldir og fjögur ár með Trump geti ekki eytt þeirri arfleifð.

Dáist að sjálfstrausti Íslendinga

Undir lok viðtalsins er Baudenbacher spurður hvert verðmætasta vald Íslands sé sem þjóðin myndi láta af hendi við inngöngu í ESB.

Hann svarar með persónulegri lýsingu á því sem hann dáist mest að við Íslendinga.

„Þið eruð aðeins 400 þúsund en hafið sjálfstraust eins og stórt ríki. Það kann ég mjög vel að meta.“

Hann segist ekki viss um að þjóðin myndi varðveita sama sjálfstraust ef hún yrði bundin af reglum Evrópusambandsins.

„Þið yrðuð mjög lítill fiskur í gríðarlega stórri tjörn.“

Þegar hann er spurður hvort einhver rök með aðild Íslands að ESB séu nægilega sterk til að taka beri þau alvarlega svarar hann: „Engin.“ Að hans mati verði að skoða heildarmyndina og hún líti illa út.

Sönnunarbyrðin hjá þeim sem vilja breytinguna

Baudenbacher segir EES-samninginn hafa reynst Íslandi vel, ekki síst í Icesave-málinu. Því hvíli sönnunarbyrðin ekki á þeim sem vilja halda núverandi fyrirkomulagi heldur þeim sem vilja breyta því.

„Sönnunarbyrðin fyrir því að ESB-aðild yrði að öllum líkindum betri hvílir ekki á þeim sem vilja halda núverandi kerfi. Hún hvílir á þeim sem vilja leggja af stað í þetta ævintýri.“

Hann telur slagorðið um að segja já til þess eins að sjá hvað sé í boði vera snjalla markaðssetningu. Hann efast þó um heiðarleika hennar.

„Þetta er snjöll leið. En hvort hún sé heiðarleg, um það hef ég mínar efasemdir.“

Viðtalið við Carl Baudenbacher má sjá í heild sinni hér að neðan.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing